Elsa Nielsen bæjarlistamaður 2016

Elsa Nielsen

Elsa Nielsen verður næsti bæjarlistamaður Seltjarnarness. Hún var útnefnd af menningarmálanefnd bæjarins. Elsa er tuttugasti Seltirningurinn til að hljóta þessa nafnbót.

Elsa Nielsen verður næsti bæjarlistamaður Seltjarnarness. Hún var útnefnd af menningarmálanefnd bæjarins 16. jan. sl. föstudag. Elsa er tuttugasti Seltirningurinn til að hljóta þessa nafnbót.

Í umsögn menningarmálanefndar segir að Elsa hafi sýnt og sannað með verkum sínum að hún er meðal okkar fremstu hönnuða í dag. Viðfangsefni hennar eru fjölbreytt og hafa hlotið verðskuldaða athygli hvort sem er á sviði grafískrar hönnunar, merkjahönnunar, auglýsingaherferða, málaralistar, stafrænnar myndvinnslu, teikninga, myndskreytinga, frímerkjahönnunar eða bókaútgáfu. Litabók hennar Íslensk litadýrð vermdi efstu sæti bóksölulista undir lok síðasta árs. Mörg hundruð manns fylgdust af áhuga með dagbókarfærslum hennar á Instagram og Facebook undir yfirskriftinni „einádag“, þar sem hún skrásetti líf sitt með því að teikna eina mynd á dag allt árið um kring. Í tilefni af útnefningunni hefur verið opnuð sýning á öllum dagbókarfærslunum 365 í Gallerí Gróttu og stendur sýningin yfir til 5. febrúar. Elsa er fædd í Reykjavík árið 1974. Hún útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Listaháskóla Íslands árið 1999. Hún starfaði í 13 ár sem hönnunarstjóri á auglýsingastofu ENNEMM en frá september 2013 hefur hún rekið sitt eigið hönnunarfyrirtæki, Nielsen hönnunarstofu. Hún býr á Seltjarnarnesi ásamt eiginmanni og þremur börnum.

Uppstækkaður grafískur myndflötur

Á sviði málaralistarinnar hefur Elsa einkum einbeitt sér að því að mála uppstækkaðan grafískan myndflöt á striga með akrýllitum. Verkunum ljær hún dýpt með því að byggja flötinn upp með sparsli og sandi. Þó að málverk Elsu standi sjálfstæð sýna þau glöggt hvernig Elsu tekst að færa margra ára reynslu og kunnáttu með grafíska miðlun yfir á annað stig.

Kennileiti Seltjarnarness á meðal viðfangsefna

Strax á námsárum sínum fór Elsa að sýna verk sín og á nú að baki fjölda sam- og einkasýninga á sviði málaralistar. Á síðustu tveimur einkasýningum Elsu í Gallerí Gróttu og Mokka-Kaffi sýndi hún svo ljósmyndir unnar með stafrænni tækni. Þannig vann Elsa með mörg helstu kennileiti Seltjarnarness og Reykjavíkurborgar og setti í nýjan og ævintýralegan búning. Verkin hafa hvarvetna vakið athygli og verið seld utan sem innanlands.

Frímerkjateiknari

Elsa er einn af fáum frímerkjateiknurum landsins. Hún er félagi í FÍT (Félag íslenskra teiknara) og gegndi þar stjórnarsetu frá 2010-2011. Hún er fyrrum félagi SÍM (Sambands íslenskra myndlistarmanna) og hefur unnið við ýmis dómarastörf innan FÍT og einnig fyrir ÍMARK (Samtök markaðsfólks á Íslandi). Í dag situr hún í stjórn SÍÓ (Sambandi íslenskra Ólympíufara).

Íslenski bókmenntaverðlaunin

Elsa hefur hlotið margar viðurkenningar og verðlaun fyrir grafíska hönnun, bæði hérlendis og erlendis, en skemmst er að minnast tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2013 fyrir Brosbókina, barnabók sem hún myndskreytti, hannaði og er meðhöfundur að. Að auki hefur hún myndskreytt og komið að útgáfu fjölmargra annarra barna- og unglingabóka.

Badmintonkonan Elsa

Farsæll ferill og velgengni Elsu hefur ekki einskorðast við sköpun á sviði hönnunar og lista, en margir þekkja hana betur fyrir afrek hennar á sviði íþrótta þar sem hún hampaði margsinnis Íslandsmeistaratitli í badminton og var fulltrúi Íslands í einliðaleik á Ólympíuleikunum í tvígang.

Blm-1

Frá útnefningu bæjarlistamanns Seltjarnarness.

collage_elsanielsen

Myndir frá ferli Elsu.

EN-2

Myndir af sýningunni #einádag í Gallerí Gróttu.

You may also like...