Tuttugu og sjö tillögur bárust

— val á vinningstillögu kynnt í maí —

Baldur Pálsson fræðslustjóri Seltjarnarnesbæjar með allar innsendu tillögurnar 27 sem bárust í hugmyndasamkeppnina – vænn stafli það.

Mikil þátttaka var  í hönnunarsamkeppni um nýjan leikskóla á Seltjarnarnesi. Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar, í samstarfi við Arkitektafélag Íslands, auglýsti opna tveggja þrepa samkeppni um nýjan 16 deilda leikskóla á Seltjarnarnesi 1. desember 2018. Skilafrestur í fyrra þrepi keppninnar rann út þriðjudaginn 19. febrúar 2019. 

Tuttugu og sjö tillögur bárust og valdi dómnefnd fjórar þeirra til áframhaldandi þátttöku. Skilafrestur í öðru þrepi keppninnar er 15. apríl n.k. Áætluð heildarstærð leikskólans er um 2.400 fermetrar nettó, en samkeppnissvæðið í heild er tæplega 10.000 fermetrar að stærð. Þar skal gert ráð fyrir leiksvæði, aðkomu og bílastæðum, en leikskólinn skal rúma 300 börn. Mikil áhersla er lögð á góða nýtingu rýmis og samspil úti- og innisvæða. Lögð er áhersla á góða aðstöðu fyrir börn og starfsfólk.   

Gert er ráð fyrir að val á vinningstillögu verði tilkynnt um miðjan maí og þá verður haldin sýning á öllum keppnistillögum auk þess sem útbjóðandi gefur út prentað dómnefndarálit um allar tillögur.

Lóð leikskólans á Seltjarnarnesi.

You may also like...