Hjúkrunarheimilið Seltjörn hefur starfsemi

— dagdvöl opnuð fyrsta október —

Seltjörn hjúkrunarheimili, er nýtt hjúkrunarheimili, staðsett við Safnatröð á Seltjarnarnesi. Tekið var á móti fyrsta heimilisfólkinu 20. mars síðastliðinn og var hjúkrunarheimilið komið í fullan rekstur í byrjun júlí. Fyrsta október er  fyrirhugað að opna dagdvöl með níu heimildum sem  reiknað er með að fjölga í 25 frá næstu áramótum.

Húsið er allt hið glæsilegasta og er skipt  í fjögur heimili hvert fyrir 10 heimilismenn, allt á einni hæð.  Heimilið er hannað í anda Eden-stefnunnar þar sem lögð er áhersla á sjálfræði hvers íbúa. Góð aðstaða er fyrir endurhæfingu,  iðjuþjálfun og sjúkraböðun í húsinu.  Eitt af því sem vekur jafnan athygli gesta sem skoða heimilið er göngustígur á þaki hússins en húsnæðið var hannað af Arkís-arkitektum.  

Eins og gengur og gerist þegar hjúkrunarheimili hefur rekstur í nýju húsnæði  eru ýmsar áskoranir sem þarf að takast á við. Má þar helst nefna nýráðningar og þjálfun starfsfólks. Þá voru ýmsir  þættir varðandi húsnæðið sem þurfti að leysa úr. Þegar á heildina er litið er  ekki hægt að segja  annað en að þetta hafi allt tekist  vel og á starfsfólk  Seltjarnar og aðrir sem komu að opnun heimilisins miklar þakkir skildar fyrir þeirra framlag. Í framtíðinni á  Seltjörn án efa eftir að vera framúrskarandi hjúkrunarheimili en einnig skemmtilegur og eftirsóknarverður vinnustaður.

Þeir sem hafa áhuga á að skoða heimilið er velkomið að líta við (helst á dagvinnutíma) og er þá heppilegt að gefa sig fram við deildarstjóra á vakt.

You may also like...