Dagþjálfun aldraðra flutt í Seltjörn

Dagdvöl fyrir aldraða hefur nú verið flutt í Seltjörn, nýja og glæsilega hjúkrunarheimilið á Seltjarnarnesi eftir að hafa verið í 15 ár á Skólabraut 3 til 5. Seltjarnarnesbær hefur starfrækt dagvistina frá árinu 2004 en þann 1. október sl. tók Vigdísarholt sem sér um rekstur hjúkrunarheimilisins yfir rekstur dagdvalarinnar sömuleiðis í samstarfi við Seltjarnarnesbæ sem á allt húsnæðið.

Í dag er heimild fyrir níu einstaklinga í dagdvölinni en vegna mikillar eftirspurnar eru oft 11 einstaklingar að nýta sér þjónustuna. Óskað hefur verið eftir því að fá að fjölga í 25 frá næstu áramótum, þar af verði níu fyrir minnisskerta. Umsókn þess efnis er nú til umfjöllunar í heilbrigðisráðuneytinu og er vonast eftir jákvæðum svörum fyrir áramótin.

Dagþjálfunin er opin alla virka daga frá kl. 8:00 til 16:00 og þar er lögð áherslu á góða samveru og félagsskap. Dagdvölin hefur það hlutverk að bjóða eldri borgurum á Seltjarnarnesi og annars staðar af höfuðborgarsvæðinu þjónustu sem miðar að því að þeir geti dvalið sem lengst á eigin heimili, þrátt fyrir skerta andlega eða líkamlega heilsu.

Ýmis þjónusta í boði

Hægt er að nýta sér dagdvölina í einn eða fleiri daga í viku. Þar er heilsufar einstaklinganna metið, veitt hjúkrunarþjónusta, félagsleg ráðgjöf og aðstoð við athafnir daglegs lífs allt eftir þörfum hvers og eins. Þjónustan getur falið eftirfarandi þætti í sér: Fæði, hreyfingu og þjálfun, hvíldaraðstaðu, tómstundaiðju, böðun og akstur að heiman og heim. Allar frekari upplýsingar um dagþjálfunina veitir Rannveig Sölvadóttir, í síma 852 1180 auk þess sem hægt er að senda fyrirspurn á tölvupóstfang dagdeildseltjorn@sunnuhlid.is Einnig er hægt að fylgjast með fréttum á facebook síðu Vigdísarholts sjá slóð: Nánar á Dagdeild Seltjörn https://www.facebook.com/Dagdeild-Seltjörn-100422201394394.

You may also like...