Endurgera á torgið fyrir framan Breiðholtskirkju

Breiðholtskirkja.

Ákveðið hefur verið að bjóða út framkvæmdir við fyrsta áfanga endurgerðar á útivistar og torgsvæðum í Mjódd. Um er að ræða torgið fyrir framan Breiðholtskirkju, á milli kirkjunnar og Þangbakka 8 til 10.

Áætlaður kostnaður við fyrsta áfanga verksins er 50 milljónir króna.Unnið verður áfram að undirbúningi og hönnum vegna síðari áfanga en verkið verður unnið í þremur áföngum að því er fram kemur á vef Reykjavíkurborgar.

Svæðið verður hellulagt og gróðurbeðum, leiksvæðum, bekkjum og lýsingu verður komið fyrir þar. Aspir verða fjarlægðar, enda hafa rætur þeirra farið illa með hellulagnir, og nýjum gróðri komið fyrir í stað þeirra.

Áfangi númer tvö verður milli Sambíóanna og Þönglabakka 8 til 10. Þriðji áfanginn verður svo austan Landsbankans, milli Þönglabakka 10 og verslunarmiðstöðvarinnar í Mjódd.

You may also like...