Bygging stúdentaíbúða að hefjast við Gamla Garð

Tölvugerð mynd af fyrirhuguðum nýbyggingum við Gamla Garð við Hringbrautar. Eins og sjá má á myndinni hefur verið lögð áhersla á að eldri byggingar þar á meðal Gamli Garður fái áfram notið sín.

Hafin er undirbúningur að byggingu stúdentaíbúða á svæðinu við Gamla Garð við Hringbraut. Að undanförnu hefur verið unnið við grunn fyrirhugaðra bygginga. Með þeim verður íbúðum fyrir stúdenta fjölgað á Háskólasvæðinu. Annars vegar verður byggt við Gamla Garð en einnig er fyrirhugað að nýta bygginguna Stapa fyrir stúdentaíbúðir. Unnið verður samkvæmt deiliskipulagstillögu Andrúms arkitekta.

Áformað er að reisa viðbyggingu við Gamla Garð sem verður þrjár hæðir og kjallari og tengjast mun suðurgafli núverandi húss. Við það verður til nýr aðalinngangur að sameinuðum Gamla Garði og viðbyggingu frá Sæmundargötu eða Skeifunni svokölluðu. Gert er ráð fyrir að í viðbyggingunni verði 70 ný stúdentaherbergi ásamt sameiginlegum eldhúsum, samkomurýmum og geymslum. Í tillögu Andrúms arkitekta að viðbyggingunni er lagt upp með að hún falli vel að núverandi byggingum á háskólasvæðinu. Gamli Garður var á sínum tíma teiknaður af Sigurði Guðmundssyni arkitekt. Dregið verður til muna úr umfangi bygginga miðað við fyrri hugmyndir þannig að þær bygg-ingar sem eru fyrir á svæðinu fái að njóta sín áfram. Samkvæmt upplýsingum frá Félagsstofnun stúdenta er hönnun komin vel á veg. Gert er ráð fyrir að lokið verði við verkið síðsumars 2021.

You may also like...