Nýr samstarfssamningur Gróttu og Seltjarnarnesbæjar

Þröstur Þór Guðmundsson varaformaður Gróttu og Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri við undirritun samstarfssamningsins en með þeim voru þau Haukur Geirmundsson, Sigríður Sigmarsdóttir og Kári Garðarsson.

Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri og Þröstur Þór Guðmundsson varaformaður Gróttu undirrituðu nýjan samstarfssamning þann 25. maí sl. Samningurinn lýtur að því markmiði að tryggja öflugt og fjölbreytt íþróttastarf á Seltjarnarnesi. Um er að ræða þriggja ára samning sem gildir til 31. desember 2022. 

Í samningnum kemur meðal annars fram að Grótta skuli hafa það að markmiði að bjóða börnum og unglingum skipulagt íþróttastarf undir leiðsögn menntaðra og hæfra leiðbeinanda þar sem forvarnargildi íþrótta er haft að leiðarljósi. Einnig að hlúa að keppnis- og afreksíþróttafólki þannig að það nái sem bestum árangri. Seltjarnarnesbær mun hafa það að markmiði að efla aðstöðu og treysta rekstrar- og starfsgrundvöll félagsins með beinum fjárframlögum og samningi um rekstur íþróttamannvirkja.

You may also like...