Grófarhúsið endurgert

– verður lifandi menningar- og samfélagshús í Miðborginni –

Grófarhúsið. Ætlunin er að endurheimta upprunalegt útlit þess auk að byggja við það.

Grófarhús verður lifandi menningar- og sam­félagshús og hönnunarsamkeppni verður haldin um endurgerð og stækkun þess. Borgarráð hefur samþykkt tillögu borgarstjóra þess efnis að fela umhverfis- og skipulagssviði að undirbúa hönnunarsamkeppni um endurgerð og stækkun Grófarhúss en þar eru nú til húsa höfuðstöðvar Borgarbókasafns – Menningarhúss, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Borgarskjalasafn. Framkvæmdin sjálf mun fela í sér gagngera endurgerð Grófar­hússins við Tryggvagötu og tengingu við nýja viðbyggingu.  

Aðalútibú Borgarbókasafnsins er til húsa í Grófarhúsinu en hugmyndin er að breikka starfsemi þess í anda breytinga á bókasöfnum í nágrannalöndunum. Grófarhúsið á að verða hús fyrir fólk þar sem „allir eru velkomnir og upplifa að þeir séu það“ eins og segir í forsögn að fyrirhugaðri samkeppni. „Fólk á að geta komið saman, verið einsamalt, leitað sér upplýsinga eða bara dvalið í fjölbreyttum herbergjum á sínum forsendum og notið jafns aðgengis að fjölbreyttu rými, upplifun og upplýsingum, óháð samfélagsstöðu, efnahag, kyni, heilsu eða þjóðerni.“ Ætlunin er að upprunalegt útlit hússins verði endurheimt og að lögð verði áhersla á endurnýtingu og sjálfbærni í samræmi við hugmyndafræði Græna plansins. Þá eru einnig hugmyndir um að á húsinu verði þakgarður þar sem borgarbúar geta notið samveru og útsýnis yfir höfnina og Grjótaþorpið. Á jarðhæð hússins er gert ráð fyrir útfærslu á borgaraþjónustu og sérstaklega hugað að þjónustuhönnun.

You may also like...