Vesturbugt tilbúin til uppbyggingar

Vesturbæjarbugt 1 1

Hér má sjá staðsetningu lóðanna við gömlu höfnina.

Nýjar lóðir í Vesturbugt við gömlu höfnina í Reykjavík við Mýrargötu eru tilbúnar til útboðs. Lóðirnar eru við Hlésgötu í Vesturbugt. Þær eru miðsvæðis og um gott útsýni yfir höfnina og til Esjunnar er að ræða sem gera ætti svæðið eftirsóknarvert til búsetu. Kaupandi byggingarréttarins fær heimild til að hanna og byggja um 170 til 176 íbúðir og atvinnu­húsnæði á jarðhæðum. Undir húsunum verða bílageymslur með um 170 bílastæðum og verða þau í umsjá Bílastæðasjóðs Reykjavíkur til að ná fram betri nýtingu þeirra allan sólarhringinn.

Uppbygging í Vesturbugt er liður í þeirri stefnu að auka byggð í nálægð við vinnustaði, verslun og þjónustu miðborgarinnar. Deiliskipulag fyrir Vesturbugt gerir ráð fyrir vistvænum áherslum og vönduðum almenningsrýmum sem styðja vel við mannlíf og útivist. Torg og stígar innan lóða verða hluti almenningsrýmis. Gróður er hluti af frágangi þeirra og hitalögn verður undir göngusvæðum. Áherslur Reykjavíkurborgar í uppbyggingunni eru einnig að styðja við fjölbreytta byggð og gerir borgin ráð fyrir að kaupa um 74 íbúðir af íbúðunum 170 – 176 samkvæmt tilboði bjóðanda. Til að ná fram markmiðum Reykjavíkurborgar um blandaða íbúðabyggð er gerð krafa um að 10% íbúða verði leiguíbúðir. Af hálfu Reykjavíkurborgar er lögð áhersla á að ná fram fjölbreyttu yfirbragði byggðarinnar og í deiliskipulagi eru gerðar kröfur um hönnun af mismunandi arkitektastofum með það í huga að fá fram fjölbreytileika í útliti húsa. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri segir ánægjulegt að þessum áfanga skuli vera náð. Vesturbugtin sé áhugaverður staður og mikilvægt að vel verði staðið að uppbyggingu. Dagur kveðst vilja sjá áhugaverða blöndu af íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði og skapandi lausnum og góða hönnun og kveðst sannfærður um að þetta lykilverkefni eigi eftir að vekja áhuga og athygli góðra þróunar- og uppbyggingaraðila.

Vesturbæjarbugt 2 1

Líkan sem sýnir staðsetningu íbúðanna.

Vesturbæjarbugt 3 1

Hér má sjá staðsetningu hverrar byggingar fyrir sig.

 

You may also like...