Samstarf um stækkun fimleikahússins á Seltjarnarnesi

ithrottamidstod

Hugmynd er um að Seltjarn­ar­nes­bær og Reykja­vík­ur­borg standi sam­an að stækk­un íþróttaaðstöðu Gróttu á Seltjarn­ar­nesi. Gert er ráð fyrir að reisa viðbygg­ingu við nú­ver­andi íþróttaaðstöðu og nýja bygg­ing­in verði nýtt til iðkunar fim­leika.

Dag­ur B. Eggerts­son, borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur heim­sótti fimleikadeild Gróttu, leit við á æfingu og sagði frá hugmyndinni um fyrirhugað samstarf en Dagur flutti starfsaðstöðu sína úr ráðhúsi Reykjavíkurborgar í Vesturbæinn í nokkra daga og kom þá við á Seltjarnarnesi. Upp­haf þessara hugmynda má rekja til viðræðna sveit­ar­fé­lag­anna 2010 þótt ekki yrði af samstarfi á þeim tíma. Reykvíkingar starfa mikið með Gróttu á sviði fimleika og mun allt að 80% iðkenda í Gróttu vera búsetta í Reykjavík. Málið er enn á frumstigi og eftir er að ákveða hvernig kostnaði við nýbygginguna verður skipt á milli sveitarfélaganna og einnig endanlega stærð hennar. Miðað er við að þessu verkefni verið lokið innan þriggja ára.

You may also like...