Reynslan úr Breiðholtinu nýtist mér vel

Nichole Leigh Mosty formaður hverfisráðs Breiðholts og alþingismaður. Myndin er tekin í Fellunum í Breiðholti.

Gleðilegt ár kæru Breiðhyltingar og takk fyrir það gamla. Árið 2016 var umfangsmikið ár hjá okkur hér í Breiðholti. Ég vil þakka hverfisbúum sem hafa stutt mig bæði með atkvæðum og trausti sem þið veittuð mér í tengslum við kosningar til Alþingis á liðnu hausti. Einnig vil ég þakka ykkur sem ég hef mætt hér í hverfinu og óskað mér bæði velgengni og einnig minnt mig á þá ábyrgð sem ég ber hér í okkar kjördæmi. Ég er mjög stolt af að stiga fram sem fulltrúi Breiðholts á landsvísu. Það hefur reynst mér vel að mæta til starfa með reynslu og þekkingu tengda þeim verkefnum sem við höfum verið að vinna að hér í okkur hverfi.

Þótt ég hafi tekið við þessari nýju stöðu vil ég taka sérstaklega fram að ég mun áfram gegna stöðu formanns í hverfisráðinu þar sem hjartað mitt slær hér. Ég tel það mikilvægt að ég fylgi áfram þeirri vinnu sem við höfum lagt af stað með í ráðinu í tengslum við stefnumið okkur. Ég vil nefna nokkra hluti sem ég hef lengi viljað tjá mig um en fékk ekki tækifæri til að gera vegna jóla og annarra anna.

Samstarf við Rauða krossinn

Á desemberfundi hverfisráðsins tókum við ákvörðun um að bjóða Rauða krossinum sæti sem áheyrnarfulltrúa á ráðsfundinum. Tveir fulltrúar frá Reykjavíkurdeild Rauða krossins komu á fund ráðsins til þess að kynna fyrir okkur umdeildu skýrsluna „Fólkið í skugganum“. Í kjölfar skýrslunnar mun einn starfsmaður á vegum Rauða kross fá aðstöðu í Gerðubergi til þess að vinna að ýmsum málefnum sem voru rædd í skýrslunni og mynda samstarf innan Þjónustumiðstöðvar Breiðholts. Ein mesta ábyrgð hverfisráðs liggur í að stuðla að hvers konar samstarfi innan hverfis. Hlutverk hverfisráð er skilgreint sem vettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda, og eru virkir þátttakendur í allri stefnumörkun hverfanna. Þannig eru hverfisráðin ráðgefandi fyrir starfsemi þjónustumiðstöðva í hverfunum og stuðla að eflingu félagsauðs innan þeirra. Rauði krossinn hefur sýnt gott fordæmi í gegnum ýmis verkefni með sjálfboðaliðum í tengslum við virkni íbúa og einnig að efla samskipti menningarleg sem mannleg sérstaklega tengd málefnum innflytjenda.

Góð umhirða og umgengni mikilvæg

Eitt af því sem mikið hefur verið rætt um í Breiðholti gegnum árin er umhirða og umgengni innan hverfisins. Þetta málefni er alltaf til umræðu og ekki spurning um að í því efni er samstarf milli íbúa og borgaryfirvalda í borginni mikilvægt. Við getum haft mikil áhrif á ákveðna hluti til dæmis umhirðu og umgengi í kringum okkur sjálfum – umhirðu eftir bæði dýr og fólk. Ruslastömpum var fjölgað eftir síðasta „Betra hverfi“ verkefni og verður fjölgað frekar á nýbyrjuðu ári. Mikilvægt er að muna að við getum haft mikið áhrif á borgina með því einfaldlega að tilkynna um aðila sem bera ábyrgð á borgarlóðum. Til dæmis ef fólk sér tjón eða eitthvað óviðeigandi á skólalóðum eða í frístundahúsnæði að tilkynna það til skólayfirvalda sem bera ábyrgð á þessum stöðum. Hægt er að hringja í Hverfisstöðina í Jafnaseli í númer 411-8440, senda tölvupóst eða senda ábendingu á vefgáttinna á síðu: http://reykjavik.is/thjonusta/abendingar-til-borgarinnar. Ekkert er að því að koma með ábendingar um það sem þarf að lagfæra á götum eða gangstéttum og koma þeim beint til þeirra sem bera ábyrgð og sjá um að þær séu í lagi.

Máttum aðeins velja 20 hugmyndir

Ég hef ekki fjallað áður um þá óánægju sem var á meðal íbúa um kosningarnar sem tengdust verkefninu „Hverfið mitt“ en ég skil hana vel. Ég var glöð að lesa hugmyndirnar sem flæddu inn frá ykkur. Eftir að hugmyndirnar komu fram tók við ferli sem einkenndist af miðstýringu af hálfu borgarinnar. Það þýddi að margar af okkar hugmyndum og eða sérstöðu sem hverfi datt út vegna þessarar miðstýringar og reglna um verkefnið. Ein þeirra reglna er að hverfisráð má aðeins velja 20 hugmyndir þrátt fyrir að Breiðholtið hafi fengið mest fjármagn í þessi verkefni af öllum hverfum borgarinnar. Ýmis verkefni voru þannig strikuð út í meðförum borgaryfirvalda þó að þau nytu mikils áhuga á meðal íbúanna. Við reyndum eftir bestu samvisku að velja 20 verkefni – verkefni sem voru þvert á hverfið, vinsæl meðal íbúa, skynsöm og hreint út sagt umbót við byggðina okkar. Við vorum svo lánsöm að fá fulltrúa frá íbúasamtökunum Betra Breiðholt og einnig frá Ungmennaráði með okkur til að velja úr hugmyndunum. Það hjálpaði mikið við valið að hafa sem flest sjónarmið á borðinu. Á nýja árinu náum við vonandi inn enn fleiri verkefnum svo þróunin hér í hverfinu okkar verði í takt við vilja íbúana.

You may also like...