Byrjað að grafa fyrir hjúkrunarheimili

Safnatröð þar sem fyrirhugað hjúkrunarheimili mun rísa.

Hafinn er uppgröftur vegna fyrirhugaðrar byggingu hjúkrunarheimilis á Seltjarnarnesi en málið hefur verið í undirbúningi um alllangt skeið. Danska fyrirtækið Munck Íslandi mun annast um framkvæmdina en það festi kaup á LNS Sögu sem átti lægsta tilboð í verkið og fékk að loknu útboði. Tilboð LNS Sögu hljóðaði upp á tæpan 1,5 milljarð króna.

Um er að ræða nýtt 40 íbúa hjúkrunarheimili á einni hæð að Safnatröð 2 á Seltjarnarnesi. Húsið mun standa saman af fjórum íbúðakjörnum og sameiginlegu miðrýni. Nýja hjúkrunarheimilið mun rísa við Norðurtún þar sem nú heitir Safnatröð. Byggingin verður á einni hæð með góðu aðgengi og þægilegri aðstöðu til útiveru. Samkvæmt samningi velferðarráðuneytisins og Seltjarnarnessbæjar sér bæjarfélagið um hönnun og byggingu hjúkrunarheimilisins og leggur til lóð. Bærinn annast jafnframt fjármögnun framkvæmdarinnar en þegar heimilið er fullbúið og verður afhent til notkunar mun velferðarráðuneytið greiða mánaðarlega húsaleigu samkvæmt samningi til fjörutíu ára og reiknast hún sem ígildi stofnframlags samkvæmt lögum um Framkvæmdasjóð aldraðra.

You may also like...