Fellaskóli hlýtur verðlaun úr Arthúrssjóði

Frá afhendingu verðlaunanna. Á myndinni má m.a. sjá verkið „Leitað“ svara eftir Tolla.

Fellaskóli hlýtur minningarverðlaun Arthurs Morthens en þau voru veitt við hátíðlega athöfn á öskudaginn. Var það einróma álit valnefndar að veita Fellaskóla verðlaunin í ár fyrir verkefnið Allir á heimavelli, metnaðarfullt skólastarf án aðgreiningar. Verðlaunin í ár voru málverk eftir Tolla, Þorlák Kristinsson Morthens myndlistarmann og bróður Arthúrs sem ber nafnið „Leitað svara“ ásamt verðlaunaskjali.

Fellaskóli hlýtur verðlaunin vegna margbreytileika nemenda- og starfsmannahópsins. Töluð eru 26 tungumál í skólanum, um 70% nemenda eru með íslensku sem annað mál og rekja uppruna sinn til fjölmargra landa víðs vegar um heiminn. Sýn skólans er að allir séu þar á heimavelli og nemendur eru viðurkenndir eins og þeir eru, allar fjölskyldur eru velkomnar í skólann og starfsfólk skólans er stolt af viðhorfum sínum. Í áliti dómnefndar kemur fram að lögð sé markviss áhersla á að byggja upp traust og vinna að þróunarverkefnum í skólastarfinu með það að markmiði að skapa vettvang fyrir raddir nemenda, efla skólaandann og þjálfa nemendur sem virka þátttakendur í lýðræðissamfélagi. Auk þessa er boðið upp á morgungraut í skólanum og í uppsiglingu er einnig meiri vinna með foreldrum. Arthur Morthens helgaði starfsævi sína börnum sem áttu á brattann að sækja og var talsmaður þeirra, oft á tíðum í erfiðri réttindabaráttu. Hann átti farsælan starfsferil og stóð að stefnumótun borgarinnar í sérkennslumálum en leiðarljós hennar er hugmyndafræðin skóli án aðgreiningar. Við andlát hans á síðasta ári samþykkti skóla- og frístundaráð að veita árlega einum grunnskóla í borginni viðurkenningu í minningu Arthurs Morthens.

You may also like...