Viljayfirlýsing um uppbyggingu á KR svæðinu

Hugmynd af KR svæðinu eins og það gæti litið út að uppbyggingu lokinni og Vesturbæjarblaðið fjallaði um í byrjun þessa árs.

Borg­ar­ráð hef­ur samþykkt vilja­yf­ir­lýs­ingu milli Knatt­spyrnu­fé­lags Reykja­vík­ur og Reykja­vík­ur­borg­ar um mögu­lega upp­bygg­ingu á KR-svæðinu við Frosta­skjól. Þar kem­ur meðal annars fram að borgin og KR láti í sameiningu vinna nýtt deiliskipulag fyr­ir svæðið sam­kvæmt þeim til­lög­um sem liggja fyr­ir og hafa verið kynnt­ar í um­hverf­is- og skipu­lags­ráði borg­ar­inn­ar.

Í umræddum tillögum er gert ráð fyr­ir um að byggðir verði um 32 þúsund fer­metrar til viðbótar þeirri aðstöðu sem fyrir er og nem­ur um 12 þúsund fer­metr­um. Gert er ráð fyrir að allt að 10 þúsund fer­metr­ar verði nýttir fyr­ir íbúðabyggð og um 10 þúsund fer­metr­ar und­ir versl­un og þjón­ustu. Þá er í tillögunum gert ráð fyrir um 350 bíla­stæðum. Að þessum byggingum reistum yrði heildarbyggð á svæðinu um 35.800 fermetrar. Ákveðið hefur verið að fela um­hverf­is- og skipulagssvæði form­lega deili­skipu­lags­vinnu í sam­starfi við KR. Borgin mun kosta gerð deiliskipulagsins sem síðar verður hluti af upp­bygg­ing­ar­kostnaði þegar þar að kem­ur. Sú íbúðabyggð sem fyrirhuguð er gæti fjölgað íbúum á svæðinu við Kaplaskjólsveg um allt að fimm þúsund eða jafnvel meir sem myndi gera nýjar kröfur til KR og einnig auka möguleika þjónustuaðila á svæðinu. Landið sem um ræðir er í eigu KR, skv. þinglýstu afsali dagsettu 10. mars 1999. Reykjavíkurborg og KR eru sammála um að virðisauki sem kann að fást vegna aukins byggingarmagns á svæðinu skuli renna til ofangreindrar uppbyggingar fyrir íþrótta- og æskulýðsstarf í Vesturbæ á vegum KR. Verður KR eigandi þeirra bygginga. Fáist nýtt deiliskipulag samþykkt er gert ráð fyrir því að gengið verði frá formlegum samningi milli Reykjavíkurborgar og KR um framkvæmdina þar sem fram komi áætlaður stofnkostnaður mannvirkja KR, forgangsröðun þeirra og frekari útfærsla, virðisauki vegna aukins byggingarréttar, tímaáætlun verkefnisins og leigusamningi við Reykjavíkurborg á viðkomandi mannvirkjum vegna hverfistengdrar þjónustu.

You may also like...