Vilja bæta aðgengi að Hagatorgi

Eins og sjá má er Hagatorg umlukið umferðargötum sem einangra það frá mannlegri umferð og til að það nýtist til mannaferða.

Vesturbæingar vilja bæta aðgengi að Hagatorgi. Í hugmyndasöfnun fyrir Hverfið mitt í fyrra voru settar inn fjórar hugmyndir um Hagatorg og betri nýtingu þess. Þessar hugmyndir voru sameinaðar í eina tillögu sem var kosin til framkvæmda í íbúakosningunni Hverfið mitt.

Verkefnið felur í sér að bæta aðgengi að Hagatorgi. Það er umfangsmikið og var því áfangaskipt. Nú hefur 1. áfangi  verið kosinn og miðar hann að því að tengja torgið betur við nærumhverfið þannig að gestir og gangandi komist á torgið á auðveldan og öruggan hátt. Í tillögunni var gert ráð fyrir upphækkuðum tengingum með grófu yfirborði til að draga úr umferðarhraða með öryggi gangandi vegfarenda í huga. Hverisráð Vesturbæjar átti fund með íbúum á dögunum þar sem rætt var um útfærslur og framtíðarhugmyndir.

You may also like...