Hönnunarsamkeppni um nýjan leikskóla á Seltjarnarnesi

Hönnunarsamkeppni um nýjan leikskóla á Seltjarnarnesi var auglýst á dögunum. Það er bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar, í samstarfi við Arkitektafélag Íslands sem efnir til hennar. Í keppnislýsingu er áætluð heildarstærð leikskólans um 2.400 fermetrar, en keppnissvæðið er 9.589 fermetrar að stærð. Þar skal gert ráð fyrir leiksvæði, aðkomu og bílastæðum. Nýr leikskóli skal byggður á núverandi svæði leikskólans, ásamt svæði sem gengið hefur undir nafninu Ráðhúsreitur. Við ákvörðun um staðarval undir nýjan leikskóla, var horft til aðgengis og gildandi aðalskipulags Seltjarnarnesbæjar, sem gerir ráð fyrir að á reit S-3 sé samfélagsþjónusta.

Markmiðið með hönnunarsamkeppninni er að fá fram metnaðarfullar hugmyndir um byggingu leikskóla á þessum stað sem myndar sterka byggingarlega heild með núverandi umhverfi. Staðsetning byggingarinnar skal falla sem best inn í umhverfið og skyggja sem minnst á aðliggjandi lóðir og útivistarsvæði leikskólans. Mikil áhersla er lögð á góða aðstöðu fyrir börn og starfsfólk auk þess sem leggja skal áherslu á góða nýtingu rýmis og samspil úti- og innisvæða. Við hönnun skal leggja áherslu á hagkvæmni í byggingu og rekstri. Hugað skal að mannlífi bæði innan- og utandyra og að líf þeirra sem þarna dvelja verði gott, þægilegt, líflegt og skemmtilegt. Nýr leikskóli verður í góðum tengslum við aðrar þjónustustofnanir m.a. félagsheimili, íþróttahús, Hreyfiland og bókasafn bæjarins. Samkeppnin er opin tveggja þrepa keppni þar sem allt að fimm tillögur verða valdar af fyrir þrepi til nánari útfærslu á seinn þrepi hennar. Áætlað er að vinningstillaga verði kynnt í maímánuði 2019.

You may also like...