Um 3,4 hektarar tapaðir

Seltjarnarnes-1953-

Myndin var tekin árið 1954 og var Seltjarnarnesið þá 210,3 ha en er í dag 206,9 ha og hefur því minnkað sem nemur 3,4 ha lands.

Seltjarnarnes hefur tapað 3,4 hekturum lands sem svarar fjórum gervigrasvöllum af völdum sjávar.

Þetta kemur glöggt fram á loftmynd af Seltjarnarnesi sem tekin var af Landmælingum Íslands árið 1954. Nýlega réðst Seltjarnarnesbær í það verkefni að teikna inn á loftmyndina lóðir, hús, mannvirki, götur og strandlínu eins og það lítur út í dag til að glöggva sig betur á þeim breytingum sem orðið hafa á byggðinni á þessum rúmu sextíu árum.

Árið 1954 var Seltjarnarnesið 210,3 ha en er í dag 206,9 ha og hefur því skroppið saman sem nemur 3,4 ha lands. Í báðum tilfellum eru mælingar miðaðar við núverandi sveitarfélagamörk í austur, við landamæri Reykjavíkur. Til samanburðar má geta þess að gervigrasvöllurinn við Suðurströnd er 0,9 hektarar þannig að á þessum rúmu 60 árum hafa tapast tæpir fjórir slíkir vellir. Þar með er ekki öll sagan sögð því ef ekkert hefði verið aðhafst vegna sjávarrofs þá hefði Seltjarnarnes þurft að sjá á bak 6,8 ha lands og væri aðeins 203,5 hektarar í dag. Sem betur fer hafa menn verið á varðbergi gegn eyðingu náttúraflanna og búið til nýtt land eða fyllt upp í landið sem svarar 3,4 hektara eða helming þess lands sem tapast hefur. Unnt er að skoða kortið nánar á heimasíðu Seltjarnarnesbæjar, seltjarnarnes.is og prenta það út ef áhugi er á. Þá er hægt að skoða stóra mynd af því á annarri hæð Mýrarhúsaskóla, en nemandi þar, sem lætur sér annt um sögu bæjarfélagsins, fékk föður sinn til að gefa skólanum stóra útprentaða mynd af kortinu, skólastjórnendum og nemendum til mikillar ánægju.

You may also like...