Velheppnuð hátíð á Sumardaginn fyrsta

Sumar 1 1

Margt var til gamans gert og m.a. brugðið á leik á reiðhjólum.

Margt var um manninn á Sumardaginn fyrsta í Vesturbænum og var ekki hægt að sjá annað en að fólk skemmti sér afar vel.

Þetta er sennilega ein stærsta hátíðin sem hefur verið í Vesturbænum á Sumardaginn fyrsta síðustu ár. Afar fjölbreytt dagskrá var í boði og gátu flestir fundið eitthvað við sitt hæfi. Það voru hin ýmsu félagasamtök í Vesturbænum sem héldu utan um dagskrána líkt og síðastliðin ár. Skipuleggjendum hátíðarinnar langar að þakka öllum þeim sem á einn eða annan hátt komu að hátíðinni, hvort sem það var með styrkjum, vinnuframlagi eða komu bara til að skemmta sér.

Sumar 2 1

Tónlistin fékk einnig að njóta sín.

You may also like...