Stærsta byggingarverkefni í miðborginni til þessa

Austurbakki Skoflustunga 1

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins, Gísli Steinar Gíslason og Guðni Rafn Eiríksson frá Landstólpa þróunarfélags tóku fyrstu skóflustunguna vegna upphafs framkvæmda við reit eitt og tvö við Austurbakka í Reykjavík á sumardaginn fyrsta.

Forráðamenn Landstólpa þróunarfélags og borgarstjórinn í Reykjavík nýttu sumardaginn fyrsta til þess að taka fyrstu skóflustunguna að stærsta byggingarverkefni sem fram til þessa verður ráðist í á Miðborgarsvæðinu til þessa.

Samkvæmt deiliskipulagi má byggja húsnæði á reitum eitt og tvö við Austurbakka allt að 21.400 fermetra ofan jarðar auk bílakjallara. Í hinum væntanlegu byggingum er gert ráð fyrir íbúðum og einnig fjölbreyttu húsnæði fyrir atvinnustarfsemi á borð við verslanir, veitingahús, skrifstofur og þjónustu. Auk þess verður byggður bílakjallari á reitnum sem verður samtengdur öðrum bílakjöllurum á lóðinni, allt að Hörpu. Áætlað að sameiginlegur kjallari geti rúmað allt að eitt þúsund bíla í stæði. Bílastæði sem var á þessum reitum hefur nú verið lokað en aðstaða fyrir einkabíla mun endurheimtast með tilkomu bílakjallara undir byggingunum. Í júlí á liðnu ári und­ir­rituðu Reg­inn og Landstólp­ar þró­un­ar­fé­lag kaup­samn­ing um kaup Reg­ins á öllu versl­un­ar- og þjón­ustu­rými á umræddum byggingarreitum eða um átta þúsund fer­metra af út­leigu­rými sem að mestu er staðsett á fyrstu og annarri hæð bygg­ing­anna. Ætlunin er síðan að leigja verslunar- og þjónusturými auk aðstöðu fyrir skrifstofur og starfsstöðvar í þessum hluta bygginganna. Smáralind er einnig í eigu Reg­ins og hugmyndir eru um að tengja starf­semi, rekst­ur og markaðsstarf Smáralind­ar við þessa nýju verslunarmiðstöð. Áætlað er að framkvæmdum á reitnum ljúki og byggingarnar standi tilbúnar haustið 2018. Með þessum framkvæmdum er mætt vaxandi þörf fyrir verslunar- og þjónustusvæði í miðborginni, íbúðum fjölgað í takt við aukna eftirspurn eftir búsetu og fengin lausn á bílastæðavanda.

You may also like...