Alþjóðadeild við Landakotsskóla

Landakostsskoli 1 1

Landakotsskóli mun vinna að tveggja ára þróunarverkefni sem felur í sér rekstur alþjóðadeildar við skólann.

Gert er ráð fyrir að 24 grunnskólanemendur muni stunda nám við alþjóðadeildina. Þetta kemur fram í samþykkt skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar fyrir skömmu. Í bókun fulltrúa Samfylkingar, Bjartrar framtíðar og áheyrnarfulltrúa Pírata frá fundi ráðsins 24. júní var þessari viðbót við flóru skólastarfs í borginni fagnað. Jafnframt segir í bókuninni að mikilvægt sé að svara vaxandi eftirspurn um vandað alþjóðlegt nám fyrir börn erlendra starfsmanna í atvinnulífi borgarinnar, diplómata og barna af íslenskum uppruna með tímabundna búsetu hér á landi. Landakotsskóli sé skóli með langa og farsæla sögu og faglegur metnaður einkenni áform skólans um stofnun alþjóðadeildar.

You may also like...