Vel gengur að eyða Bjarnarklónni

bjarnaklo

Hin skaðlega jurt bjarnarkló hefur verið að stinga sér niður á opnum svæðum og í einkagörðum á Seltjarnarnesi og hefur bærinn nú ráðist í útrýmingu hennar.

Samkvæmt upplýsingum frá garðyrkjustjóra bæjarins, Steinunni Árnadóttur, er almennt meira af kerfli, lúpínu og hvönn þetta árið á Nesinu en bærinn hefur unnið markvisst að því undanfarin ár að sporna gegn útbreiðslu og vexti þessara plantna með eyðingu og slætti. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa en núna er lúpínan nánast að hverfa af Valhúsahæðinni. Á vestursvæðunum hefur kerfillinn verið að sækja í sig veðrið og í sumar var flokkur ungmenna fenginn til að slá breiðu af kerfli sem var að stinga sér niður í Gróttu. Steinunn segist ánægð með árangurinn sem náðst hafi undanfarin fimm ár, en að vandasamt geti verið að hefta útbreiðslu plantnanna því varptími kríunnar og mófugla setji strik í reikninginn. Að hennar sögn er mikilvægt að eyða eins miklu áður en varp hefst og ráðast svo aftur til atlögu þegar fuglinn er farinn af svæðunum. Hvað bjarnarklónni viðvíkur þá eru bæjarbúar hvattir til að skera hana niður verði þeir hennar varir en gæta þess að safinn úr plöntunni fari ekki á húðina því hann getur valdið miklum bruna.

You may also like...