Átjándi íbúðakjarninn
— nýr og glæsilegur íbúðakjarni tekinn í notkun í miðborginni —
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, afhenti á dögunum sex tilvonandi íbúum nýs íbúðakjarna að Vesturgötu 67 lykla að íbúðum sínum. Íbúðirnar í kjarnanum eru allar rúmgóðar og bjartar, með svölum sem snúa í suðvestur og fallegu útsýni. Íbúar og aðstandendur þeirra, starfsfólk, fulltrúar Reykjavíkurborgar og Félagsbústaða, hönnuðir hússins og aðrir velunnarar voru viðstaddir hátíðlega athöfn þegar íbúðakjarninn var formlega tekinn í notkun.
Íbúðakjarninn er í nýju steinsteyptu húsi með lyftu sem nýtur sín vel í götumyndinni. Húsið er 530 fermetrar og íbúðirnar eru 60 fermetrar að stærð. Auk íbúða fyrir íbúa er í húsinu rúmgóð starfsmannaaðstaða sem stuðlar að því að unnt sé að veita íbúum þjónustu á þeirra forsendum.
Húsið er hannað af Páli Hjaltasyni og Haraldi Ingvarssyni og Jónas Bjarni Árnason hjá Afltaki var verktaki við byggingu þess. Heildarkostnaður við bygginguna nam um 340 milljónum króna. Þetta er átjándi íbúðakjarninn sem Félagsbústaðir hafa ýmist byggt eða keypt í Reykjavík frá árinu 2018.