Leiðtogafundur ungs fólks á Norðurlöndunum

Hluti af fulltrúum Ungmennaráðs með Guðmundi Inga Guðbrandssyni og Action Plan sem afhent var við lok leiðtogafundar.

Ungmennaráð Seltjarnarness átti hvorki meira né minna en þrettán fulltrúa á Leiðtogafundi ungs fólks á Norðurlöndunum sem fór fram í Hörpu dagana 24. og  25. nóvember síðastliðinn. Viðburðurinn var hluti af formennsku­­verkefni Íslands í Norrænu Ráðherranefndinni í ár og börn og ungmenni á aldrinum 13 – 25 ára frá öllum Norður­löndunum tóku þátt. 

Leiðtogafundurinn er öflugur samráðs- og samtalsvettvangur barna og ungmenni sem varða þau sjálf. Í aðdraganda að viðburðinum var ljóst í samtali og á samstarfsfundum barna og ungmenna að þau vilja meira en að vera spurð um hvað þeim finnst, þau vilja aðgerðir. 

Líflegar umræður áttu sér stað hjá ungmennunum á föstudeginum og laugar­deginum var ráðstafað í að draga saman niðurstöður úr umræðunum og mynda úr þeim aðgerðir sem afhentar voru Guðmundi Inga Guðbrandssyni, félags- og vinnu­markaðsráðherra og samstarfs­ráðherra Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. 

Mikil áhersla var lögð á mikilvægi umhverfisverndar og sjálf­bærrar þróunar, með því til dæmis að koma á og viðhalda verndar­svæðum og framfylgja lögum gegn skaðlegum iðnaði og mengunar­völdum. Unga fólkið krefst aukinnar fjárfestingar í menntun, lengri opnunartíma í félagsmiðstöðvum, jafns aðgengis að námi og öflugri almenningssamgangna. Allt eru þetta lykilatriði í baráttunni fyrir betri og sjálfbærari heimi. 

Fulltrúar úr Ungmennaráði Seltjarnarness voru sveitarfélagi sínu til sóma og höfðum mikið til málanna að leggja. Þátttaka í viðburð eins og þessum skilar heilmiklu í reynslubankann fyrir ungt fólk og niðurstöður sýna fram á mikilvægi þess að skapa ung­mennum vettvang til að eiga opinskátt samtal um eigin lífsgæði. Þannig geta þau krafist aðgerða, haft áhrif á sitt nærum­hverfi og í þessu tilfelli Norðurlöndin öll. Raddir ungs fólks eru mikilvægustu raddir samtímans og það er ábyrgð fullorðna fólksins að skapa þeim tækifærin til að láta í sér heyra, hlusta, taka mark á skoðunum þeirra og hugmyndum og mæta þeim af virðingu.

Ungt fólk er ekki bara framtíðin heldur eru þau einnig nútíðin. Þau tala fyrir sig og sína jafnaldra, en líka fyrir þær kynslóðir sem á eftir þeim koma. 

You may also like...