Safn Júlíönu Sveinsdóttur í Tjarnargötunni

Tjarnagata 36 1

Tjarnargata 36 þar sem áformað er að safn um Júlíönu Sveindóttur myndlistarmann verði til húsa í framtíðinni.

Áform eru um að stofna safn um myndlistarkonuna Júlíönu Sveisdóttur í Tjarnargötu 36 í Reykjavík. Ætlunin er að færa húsið til upprunalegs horfs og byggja við það til suðurs því hefur verið breytt nokkuð í tímans rás.

Það er Bergljót Leifsdóttir – dóttir Leifs Sveinssonar lögfræðings sem var þekktur maður í Reykjavík og í húsinu sem stendur að baki þessum hugmyndum. Leifur var mikill safnari og var stærsta einkasafn á verkum Júlíönu í eigu Leifs en hún var föðursystir hans. Júlíana Sveinsdóttir var einn af þekktari myndlistarmönnum á fyrri hluta 20. aldar. Hún fæddist í Vestmannaeyjum 1889 og bjó lengst af í Kaupmannahöfn þar sem hún lést 1966. Foreldrar hennar voru Guðrún Runólfsdóttir og Sveinn Jónsson trésmíðameistari sem stofnaði timburverslunina Völund. Júlíana var systir Sveins M. Sveinssonar sem var faðir Sveins, Haraldar og Leifs sem löngum voru kenndir við fyrirtækið og kallaðir Völundarbræður. Í upphafi tuttugustu aldar var ekki sjálfgefið að ungar stúlkur héldu utan til náms en Júlíana bjó yfir ótvíræðum hæfileikum og átti föður sem hafði áhuga og getu til að styrkja hana. Sigldi hún til Kaupmannahafnar árið 1909 og eftir þriggja ára undirbúningsnám hlaut hún inngöngu í hinn virta Konunglega danska listaháskóla. Júlíana stundaði nám við málaradeild skólans næstu fimm árin og útskrifaðist þaðan árið 1917.

Verðskuldað hlutverk

Á ferli sínum tók Júlíana þátt í rúmlega hundrað samsýningum og hélt 11 einkasýningar á Íslandi og í Danmörku. Júlíana var einnig einn þekktasti listvefari Norðurlanda. Hún stundaði að mesu sjálfsnám í vefnaði og notaði íslenska ull litaða úr jurtum sem hún safnaði á sumrin þegar hún dvaldi á Íslandi. Auk starfa sinna að myndist var hún virk í samtökum listamanna. Hún sat meðal annars sem fulltrúi listamanna í stjórn Hins konunglega danska listaháskóla sem hefur m.a. það hlutverk með höndum að vera opinberum aðilum ráðgefandi varðandi myndlist og arkitektúr og veita viðurkenningar á sama vettvangi. Eftir lát Leifs Sveinssonar á liðnu ári hefur húsið við Tjarnargötu 36 verið ónotað að öðru leyti en því að hýsa stórt bóka- og listaverkasafn Leifs og Halldóru konu hans en nú stefnir Bergljót dóttir þeirra að því að finna æskuheimili sínu nýtt og verðskuldað hlutverk.

You may also like...