Fanney og Nökkvi íþróttafólk Seltjarnarness 2016
Fanney Hauksdóttir og Nökkvi Gunnarsson hafa verið útnefnd íþróttakona og íþróttamaður Seltjarnarness árið 2016. Kjörið fór fram í 24. skipti en það er í umsjón Íþrótta- og tómstundanefndar Seltjarnarness.
Í rökstuðningi fyrir valinu segir: Fanney Hauksdóttir – Íþróttakona Seltjarnarness
Fanney er 24 ára og byrjaði að æfa kraftlyftingar fyrir 5 árum eftir að hafa stundað fimleika í áraraðir. Árangur hennar á árinu 2016 var stórglæsilegur. Hún byrjaði árið á því að bæta Íslands- og Norðurlandamet í -63 kg flokki á heimsmeistaramótinu í bekkpressu með búnaði í Danmörku í apríl þar sem hún lyfti 152,5 kg. Í maí varð hún heimsmeistari í klassískri bekk-pressu (án búnaðar) í -63 kg flokki í Suður-Afríku þar sem hún bætti sitt eigið Íslandsmet og lyfti 105 kg. Fanney varð Evrópumeistari í bekkpressu með búnaði í ágúst þar sem hún setti tvö Íslandsmet og lyfti 155 kg. Í október bætti hún svo aftur Íslandsmet sitt í bekkpressu á Íslandsmeistaramótinu í klassískum lyftingum á heimavelli á Nesinu þegar hún lyfti 108 kg og varð Íslandsmeistari í 63 kg flokki. Fanney hefur skipað sér á bekk með fremstu kraflyftingakonum heims þrátt fyrir ungan aldur. Hún er þriðja á heimslista í sínum flokki í bekkpressu og fimmta á heimslista í klassískri bekkpressu. Hún er mikil fyrirmynd ungra stúlkna hér á Seltjarnarnesi og reyndar um víða veröld. Hún æfir vel, lifir heilsusamlegu líferni og er hógværðin uppmáluð.
Nökkvi Gunnarsson – Íþróttamaður Seltjarnarness
Nökkvi Gunnarsson úr Nesklúbbnum er og hefur til margra ára verið einn fremsti kylfingur landsins og keppt á sterkum golfmótum víða um heim. Bæði sem einstaklingur og einnig sem hluti af landsliði íslenskra golfkennara. Á síðasta ári varð hann í annað sinn Íslandsmeistari karla á Íslandsmóti 35 ára og eldri sem haldið var í Vestmannaeyjum. Þá hafnaði Nökkvi í 2. sæti í Meistaramóti Nesklúbbsins og vann til fjölda annarra verðlauna í íþróttinni á árinu, þar á meðal sigraði hann tvö af fjórum opnum mótum sem haldin voru á Nesvellinum. Nökkvi var einnig í liðssveit Nesklúbbsins sem hafnaði í 4. sæti á Íslandsmóti golfklúbba og haldið er á vegum Golfsambands Íslands. Nökkvi hefur síðan 2010 starfað sem golfkennari hjá Nesklúbbnum hér á Seltjarnarnesi. Hann hefur þar í starfi sínu meðal annars haft yfirumsjón með allri þjálfun krakka og unglinga en það starf hefur tekið gríðarlegum stakkaskiptum á undanförnum árum. Hann hefur með kunnáttu sinni og áhuga á íþróttinni, elju og jákvæðni átt mikinn þátt í því undanfarin ár að breiða út jákvætt viðhorf gagnvart golfíþróttinni á Seltjarnarnesi sem og á landsvísu.