Íbúðir og hótel við Alliance húsið
Stefnt er að nýbyggingum við Grandagarð 2 á reitnum við Alliance húsið. Gert er ráð fyrir að þar verði íbúðir auk hótels með 81 herbergi.
Byggingarnar verða alls 5.743 fermetrar að flatarmáli. Þeim er ætlað að mynda svonefnda randbyggð sem rammar inn skjólgott útisvæði. Grandagarður 2 er í eigu Reykjavíkurborgar en áformað er að selja húsið ásamt byggingarrétti.