ÍR og Hekla hf. gera samstarfssamning

Þorsteinn Magnússon ritari aðalstjórnar ÍR og Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu takast í hendur að undirritun lokinni að viðstöddum ungum ÍR-ingum.

– mun skipta miklu fyrir ÍR, segir Ingigerður Guðmundsdóttir formaður.

Íþróttafélag Reykjavíkur ÍR og Hekla hf. hafa gert með sér samstarfssamning sem undirritaður var með viðhöfn á fyrsta heimaleik karlaliðs ÍR í úrvalsdeild í körfubolta 12. október í íþróttahúsi Seljaskóla. Samningurinn er mikið fagnaðarefni og undirstrikar mikilvægi samstarfsaðila í íþróttastarfi og viðskiptum. Samstarfssamningurinn er sá stærsti sem aðalstjórn ÍR hefur gert um margra áratuga skeið.

„Samstarfssamningur ÍR og Heklu á án efa eftir að verða mikil lyftistöng fyrir starfsemi ÍR sem fer vaxandi með hverju árinu. Iðkendur ÍR eru um 2.500 talsins á ársgrundvelli og tíu íþróttagreinar eru stundaðar hjá félaginu. Stuðningur Heklu skiptir miklu máli fyrir áframhaldandi starfsemi,“ segir Ingigerður Guðmundsdóttir, formaður aðalstjórnar ÍR. „Gangi allt eftir verða Hekla og ÍR nágrannar, enda hefur okkur verið úthlutað byggingarlóð fyrir höfuðstöðvar okkar í Suður-Mjódd, rétt við hlið íþróttasvæðis ÍR. Við höfum alltaf stutt íþróttastarf af heilum hug og það er okkur fagnaðarefni að styðja við þróttmikið starf ÍR,“ segir Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu. Það voru þeir Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu og Þorsteinn Magnússon ritari aðalstjórnar ÍR sem undirrituðu samstarfssamninginn á milli ÍR og Heklu umkringdir íþróttafólki ÍR úr öllum deildum.

Myndin sýnir skipulagsuppdrátt af Suður Mjóddinni frá síðustu öld þar sem gert var ráð fyrir athafnasvæðið sunnan félagssvæðis ÍR. Athafnasvæðið var síðar tekið út af skipulagi. Nú hefur Heklu verið úthlutað byggingarlóð fyrir höfuðstöðvar sínar í Suður-Mjódd, rétt við hlið íþróttasvæðis ÍR.

You may also like...