Nýr búsetukjarni við Kirkjubraut
— bjartar og glæsilegar íbúðir fyrir sex einstaklinga —
Nýr búsetukjarni hefur tekið til starfa á Seltjarnarnesi. Búsetukjarninn er við Kirkjubraut 20 og var opnaður með formlegum hætti 3. apríl sl. þegar Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri afhenti Þóru Þórarinsdóttur framkvæmdastjóra Áss styrktarfélags lyklana að húsinu.
Um er að ræða 553 fermetra húsnæði sem er í eigu Seltjarnarnesbæjar með sex einstaklingsíbúðum fyrir fatlað fólk ásamt starfsmannarými og sameiginlegri, bjartri sólstofu með fallegu útsýni. Húsnæðið er mjög umhverfisvænt og rekstrarlega hagkvæmt auk þess sem það fellur vel inn í lóðina og nýtur sín í náttúrulegu umhverfi Valhúsahæðar. Staðsetning þess er miðsvæðis, stutt í alla þjónustu og fallega náttúru. Íbúðirnar eru mjög bjartar og vel hljóðeinangraðar. Þær henta vel fyrir hreyfihamlað fólk auk þess sem þær hafa allar sér verönd.
Að veita bestu mögulega þjónustu
Fyrsta skóflustungan að búsetukjarnanum var tekin þann 8. desember 2021 og nú 15 mánuðum síðar er húsið tilbúið til notkunar. Ás styrktarfélag mun annast rekstur starfseminnar og þjónustu við íbúa Kirkjubrautar samkvæmt þjónustusamningi sem Seltjarnarnesbær og Ás styrktarfélag gerðu nýverið með sér. Markmið samningsins er meðal annars að veita fötluðu fólki sem samningurinn nær til, bestu mögulegu þjónustu í sértækri búsetu sem tök eru á að veita hverju sinni.
Mikil ánægja ríkti þegar að lyklarnir höfðu farið manna á milli enda aðdragandinn langur, margir hafa komið að verkefninu og afraksturinn góður. Búsetukjarninn er allur hinn glæsilegasti. Húsnæðið er hannað af þeim Önnu Margréti Hauksdóttur arkitekt og Pétri Jónssyni hjá AVH samkvæmt hugmyndafræðilegum áherslum Áss styrktarfélags. AVH sá ennfremur um burðarþol og lagnir, Lúmex sá um ljósahönnun, Myrra hönnunarstofa um hljóðráðgjöf og Brunahönnun slf. um brunahönnun. Húsasmíði ehf. byggði húsnæðið en byggingarstjóri og eftirlitsaðili með verkefninu fyrir hönd Seltjarnarnesbæjar var Jóhann Kristinsson hjá Strendingi ehf.