NESIÐ OKKAR – RAFRÆN ÍBÚAKOSNING
Seltjarnarnesbær hefur nú sett í gang nýtt samráðsverkefni íbúa og bæjarins um forgangsröðun og úthlutun fjármagns, 10 milljónir króna til smærri nýrra framkvæmda og viðhaldsverkefna á Seltjarnarnesi í sumar. Um er að ræða sambærilega nálgun og íbúakosningu líkt og nágrannasveitarfélög okkar hafa gert með „Okkar Kópavogur“ og „Okkar Mosó“. Verkefnið NESIÐ OKKAR er til þriggja ára og því fara 30 milljónir króna í framkvæmdir sem skipulagðar verða með þessum hætti á árunum 2018-2020.
Öllum bæjarbúum, 16 ára og eldri og með lögheimili á Seltjarnarnesi gefst kostur á og eru í raun eindregið hvattir til að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni en það skiptist í þrjá hluta; hugmyndasöfnun, íbúakosningu og framkvæmd. Samráðsvettvangurinn fer fram á netinu á nesid-okkar.betraisland.is og er opinn öllum til skoðunar og þátttöku gegn skráningu og samþykki notendaskilmála.
Helstu tímasetningar vegna NESIÐ OKKAR 2018 eru eftirfarandi:
· 20. febrúar – 11. mars: Hugmyndasöfnun fer fram á hugmyndavef verkefnisins. Seltirningar geta bæði sett inn sínar eigin hugmyndir, bætt við eða stutt hugmyndir annarra og komið með ábendingar.
· 27. febrúar kl. 17.30 – 19.00: Íbúafundur í Valhúsaskóla þar sem verkefnið verður kynnt og íbúum býðst að skila inn hugmyndum á staðnum.
· 12. mars – 9. apríl: Allar hugmyndir verða metnar af tveimur matshópum á vegum bæjarins. Fyrst verður kannað hvort að hugmyndin falli undir skilyrði verkefnisins og svo lagt mat á kostnað við hönnun og framkvæmd þeirra hugmynda sem það gera. Að lokum verður valið úr og stillt upp 20 verkefnum fyrir íbúa að kjósa um í íbúakosningu á netinu.
· 10. apríl – 24. apríl: Rafræn kosning Seltirninga um verkefni til framkvæmda sumarið 2018.
· 26. apríl: Úrslit kosninganna opinberaðar. Í framhaldi fara undirbúningur og útboð í gang sem og framkvæmdir í ferli þannig að þeim ljúki innan ársins.
Allar hugmyndir íbúa eru vel þegnar en til þess að hugmyndir komist áfram í íbúakosningu þurfa verkefnin að uppfylla ákveðin skilyrði. Þau þurfa að til að mynda að:
- · Nýtast hverfi eða íbúum bæjarins í heild.
- · Vera til fjárfestinga en ekki til rekstrar.
- · Vera framkvæmanleg án mjög flókins undirbúnings.
- · Líftími fjárfestingar skal vera að lágmarki fimm ár.
- · Tillögur samræmist skipulagi og/eða stefnu Seltjarnarnesbæjar.
- · Vera á fullu forræði Seltjarnarnesbæjar (innan bæjarmarka og ekki á landi í einkaeigu).
- · Kostnaður einstakra verkefna sé ekki lægri en 1 mkr. og ekki hærri en 3 mkr.
Ítarlegar upplýsingar um fyrirkomulagið og skilyrði fyrir þátttöku er að finna á heimasíðu bæjarins og á nesid-okkar.betraisland.is. Með verkefninu NESIÐ OKKAR er markmið bæjaryfirvalda að skapa aðstæður þar sem að íbúar geta tekið þátt í samráði með stjórnsýslunni, haft skoðanir á nærumhverfi sínu, forgangsraðað og útdeilt fjármagni í smærri framkvæmdir á vegum bæjarins. Bundnar eru vonir við það að sem flestir nýti sér tækifærið og komi sínum hugmyndum og skoðunum á framfæri. Það er einfalt að taka þátt!