Reykjavíkurborg kaupir eignir í hverfiskjörnum

Þannig hefur lengi verið umhorfs í Arnarbakkanum.

Borgarráð hefur samþykkt að Reykjavíkurborg kaupi fasteignirnar að Arnarbakka 2 til 6 í Neðra Breiðholti og Völvufell 11 og 13 til 21 í Efra Breiðholti. Með þessu hyggjast borgaryfirvöld endurlífga þessa hverfiskjarna en jafnframt breyta deiliskipulagi á reitunum. 

Upphaf þessa má rekja til þess að við vinnslu hverfisskipulags fyrir Breiðholtið komu fram skýrar kröfur íbúa um að fjárfesting myndi aukast í hverfinu og verslunarkjarnar í hverfinu yrðu gerðir upp með það fyrir augum að þar gæti ný og spennandi þjónusta og verslun fest sig í sessi. Borgin hyggst þróa þessa reiti þannig að hægt verði að auka byggingarheimildir á þeim. Þá verður auglýst eftir uppbyggingar og rekstraraðilum sem geta gert nýja og spennandi hluti í hverfinu.

Skrifstofa eigna og atvinnuþróunar Reykjavíkurborgar hefur unnið að því samkvæmt ákvörðun borgarráðs að festa kaup á fasteignum í þessum kjörnum í því skyni að endurreisa þá. Í Völvufelli 11 og 13 til 21 hefur Nýlistasafnið m.a. verið til húsa en húsið býður upp á mikla möguleika, þar sem það er í nálægð við Gamla kaffihúsið, pólsku búðina og fleiri verslanir og þjónustu. Í Arnarbakka voru eitt sinn fjölbreyttar verslanir og þjónusta en undanfarin ár hefur verið afar lítið um að vera þar. Svipað er uppi á teningnum í Völvufelli en þar í kring hefur samt verið nokkuð lífleg starfsemi. Reykjavíkurborg greiðir rúmlega 752 milljónir króna fyrir fasteignirnar.

Neglt fyrir glugga hluta byggingar í Völvufelli.

You may also like...