FB hlaut gulleplið 2019

Gulleplið er hinn glæsilegasti gripur.

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hlaut Gulleplið 2019 á liðnu vori en það eru hvatningarverðlaun heilsueflandi framhaldsskóla fyrir framúrskarandi starf í þágu heilsueflingar. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands afhenti skólanum eplið.

Gulleplið 2019 er veitt fyrir stuðning við bættan svefn og svefnvenjur framhaldsskólanema. Rannsóknir sýna að 70% framhaldsskólanema hér á landi sofa of lítið og svefnskortur hefur slæm áhrif á heilsu og vellíðan. Heilsueflandi framhaldsskólar geta því stutt við bættar svefnvenjur og aukinn svefn nemenda með ýmsum leiðum. 

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti heldur uppi markvissu starfi til að bæta svefn og svefnvenjur nemenda sinna. Í skólanum hefur markviss fræðsla átt sér stað fyrir nemendur um mikilvægi svefns fyrir ungt fólk. Einnig eru gerðar tilraunir með upphaf skólabyrjunar og skólinn býður upp á sveigjanleika fyrir þá nemendur sem á þurfa að halda. Skólinn vann markvisst að því að taka upp þá þætti sem taldir eru skipta hvað mestu máli til að bæta svefnvenjur nemenda. Áhersla er lögð á svefn og svefnvenjur í foreldrasamstarfi, að nemendum sé gefinn kostur á að hefja skóladaginn síðar í samráði við námsráðgjafa og tekur þannig tillit til einstaklingsbundinna þarfa. Þá er nemendum gefið frí í fyrsta tíma eftir skólaball þannig að þau nái átta tíma svefni þrátt fyrir skólaskemmtun.

You may also like...