Hugmyndahús Grósku bráðum tilbúið

Hugmyndahús Grósku verður bráðum tilbúið í Vatnsmýrinni.

Framkvæmdir við Grósku Hugmyndahús sem nú rís í Vatnsmýri eru langt komnar. Byggingafyrirtækið Arnarhvol sem er að stórum hluta í eigu Björgólfs Thor Björgólfssonar annast framkvæmdir. Verkefnið er hluti af Vísindagörðum HÍ og er unnið í samvinnu við skólann. 

Gróska mun hýsa öflug fyrirtæki. CCP verður með nýjar höfuðstöðvar á þriðju hæð hússins og er gert ráð fyrir að að þær opni í febrúar á næsta ári. Höfuðáhersla verður lögð á aðstæður til samskipta og tengsla, hvort sem það er innan hússins eða við fræðasamfélag háskólasvæðisins. Gróska er bygging sem ætlað er að hýsa gróðrarstöð hugmynda, þar sem öflug fyrirtæki dafna við hlið nýrri sprota. Einyrkjum og fyrirtækjum í nýsköpun, þróun og rannsóknum gefst kostur á að vera með aðstöðu í húsinu.  

World Class opnar í vor í Grósku

Þá má geta þess að World Class mun opna í byrjun mars 2020 stórglæsilega 2000 fm heilsuræktarstöð á jarðhæð í nýbyggingu Grósku í Vatnsmýrinni við hlið Háskóla Íslands. Stöðin verður fullútbúin heilsuræktarstöð í heimsgæðaflokki eins og stöðvar World Class eru þekktar fyrir. Stöðin mun innihalda fullbúinn tækjasal með Life Fitness og Hammer Strength tækjum, hjólasal, heitan hóptímasal með infrarauðum hita í lofti og gólfi ásamt hita og rakatækjum fyrir Hot Yoga og almennan hóptímasal. Í stöðinni verður heitur pottur, kaldur pottur fyrir víxlböð og kæliþjálfun, infrarauð sauna og þurrgufa. World Class í Vatnsmýri verður því sú sextánda í hópi glæsilegra stöðva sem fyrir eru.

You may also like...