Helgi Hrafn bæjarlistamaður 2015

Helgi-Tina-Dickow-21F_7200

Helgi Hrafn Jónsson bæjarlistamaður Seltjarnarness 2015 ásamt eiginkona sinni Tinu Dickow.

Helgi Hrafn Jónsson tónlistarmaður var í dag útnefndur bæjarlistamaður Seltjarnarness 2015.

Helgi Hrafn er nítjándi Seltirningurinn til að hljóta þessa nafnbót en hann hefur verið búsettur á Seltjarnarnesi frá unga aldri. Við útnefninguna tilkynnti Helgi Hrafn að hann hyggðist ánafna verðlaunafénu að upphæð einni milljón króna til Tónlistarskóla Seltjarnarness, sem lagt hefur hornstein að þeim ferli sem hann á að baki sem tónlistarmaður. Þá tilkynnti hann einnig að hann og eiginkona hans Tina Dickow myndu halda tónleika á Seltjarnarnesi í apríl. Að mati menningarnefndar Seltjarnarness er Helgi Hrafn Jónsson afar vel að útnefningu bæjarlistamannsins kominn. Jafnframt er það mikið fagnaðarefni að hann skuli, þrátt fyrir glæstan frama í hinum alþjóðlega tónlistarheimi, enn halda tryggð við samfélagið sem ól hann upp og mótaði. Þá er Helga Hrafni sérstaklega þakkað hið höfðinglega framlag hans sem ungt og efnilegt tónlistarfólk við Tónlistarskóla Seltjarnarness mun án efa njóta góðs af. Enn fremur sýnir hann bæjarfélaginu mikinn heiður með smíðum og frumflutningi á nýju tónverki á árinu auk tónleikahalds í bænum með hinni einstöku söngkonu Tinu Dickow.

Byrjaði hjá Kára

Helgi Hrafn Jónsson fæddist í Reykjavík árið 1979 og hóf sex ára gamall tónlistarnám við Tónlistarskóla Seltjarnarness þar sem hann lærði á básúnu, lengst af undir handleiðslu Kára Einarssonar. Ásamt því að taka virkan þátt í starfi Lúðrasveitar Seltjarnarness var Helgi frá tíu ára aldri meðlimur í hljómsveitinni Bossanova-bandið. Þrátt fyrir ungan aldur hljómsveitarmeðlima náðu þeir talsverðum vinsældum og fengu ótal tækifæri til að koma fram bæði hér heima og erlendis sem var þeim gott veganesti.

Starfað með mörgum tónlistarmönnum

Fjórtán ára gamall hóf Helgi Hrafn nám við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Oddi Björnssyni básúnuleikara. Þaðan útskrifaðist hann með einleikarapróf vorið 1999, þá nítján ára gamall og lék af því tilefni básúnukonsert Henri Tomasi með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Á þessum árum söng Helgi Hrafn með Hamrahlíðarkórnum undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur og lék verkið Íslenskt Rapp fyrir básúnu og kór eftir Atla Heimi Sveinsson bæði hér heima og á kórferðum erlendis. Haustið 1999 fluttist Helgi Hrafn til Austurríkis þar sem hann átti eftir að dvelja næstu átta árin. Hann nam básúnuleik við Tónlistarháskólann í Graz, hjá Prof. Carsten Svanberg og Prof. Ed Neumeister og útskrifaðist þaðan með Magistergráðu vorið 2004. Á námsárunum sínum hóf Helgi að starfa með ýmsum tónlistarmönnum og hljómsveitum. Ber þar að nefna Jazz Big Band Graz og hljómsveitina Beefolk, en sú síðarnefnda gerði það gott á tónleikaferðum um Evrópu og hélt einnig tónleika í Asíu og tvívegis á Íslandi. Helgi býr nú og starfar á Seltjarnarnesi ásamt konu sinni Tinu Dickow og tveimur ungum börnum.

You may also like...