Sumarhátíð og gleði í Vesturborg

OLYMPUS DIGITAL CAMERA

Vesturborgarkrakkarnir voru í sólar og sumarskapi á sumarhátíðinni.

Sumarhátíð Vesturborgar var haldin 25. júní sl. fyrir hátíðina höfðu börnin útbúið sumarkórónur og svo fengu þau sem vildu andlitsmálningu áður en lagt var af stað í skrúðgöngu um nágrennið.

OLYMPUS DIGITAL CAMERA

Elín Árnadóttir aðstoðarleikskólastjóri

Skrúðgangan var leidd af blásarasveitinni Ventus Brass og að henni lokinni var slegin upp veisla í garðinum hjá Vesturborg. Pylsur voru grillaðar og hápunktur hátíðarinnar var þegar Lína langsokkur mætti á svæðið. Við í Vesturborg viljum þakka öllum sem að hátíðinni komu kærlega fyrir einstaklega vel heppnaðan dag. Leikskólinn Vesturborg og foreldrafélag Vesturborgar hlutu tilnefningu til foreldraverðlauna Heimilis og skóla 2015 fyrir tiltektar- og framkvæmdadag á Vesturborg. Við erum mjög stolt og þökkum okkar frábæra foreldrafélagi fyrir mikið og gott starf. Svo má bæta við að Ellan okkar – Elín Árnadóttir aðstoðarleikskólastjóri átti fyrr í mánuðinum 20 ára starfsafmæli á Vesturborg. Henni eru þökkuð vel unnin störf.

You may also like...