Smáhýsi við leikskólann tekin í notkun í haust
Þessa dagana er unnið að því að reisa smáhýsi við leikskólann á Seltjarnesi. Áætlað er að húsin komi til landsins seinni partinn í ágúst. Eftir það mun taka um viku til 10 daga að ganga frá þeim þannig að hægt verði að hefja leikskólastarf þar í byrjun september.
Tvær deildir verða starfræktar í smáhýsum sem eru vel skipulögð, 270 fermetrar á einni hæð. Þeim verður raðað þannig saman að um eitt hús verður að ræða með inngangi fyrir miðju sem snýr að leikskólanum Smáhýsin eru hugsuð sem tímabundin lausn á húsnæðisvanda leikskólans en áætlað er að hefja hönnun nýs leikskóla á komandi haustmánuðum. Gangi þær fyrirætlanir eftir sem stefnt er að mun byggingu hins nýja leikskóla ljúka innan þriggja ára og þá er ætlunin að smáhýsin verði fjarlægð.