1. des í Való

 
Hin árlega 1. des hátíð 10. bekkinga í Valhúsaskóla var haldinn með glæsibrag í Félagsheimili Seltjarnarness. Á þessu kvöldi bjóða unglingarnir foreldrum sínum til veislu, sýna skemmtiatriði, flytja leikrit og dansa. Mikil vinna liggur að baki og allir nemendur í 10. bekk komu með einum eða öðrum hætti að undirbúningi hátíðarinnar undir leiðsögn starfsfólks Selsins og Valhúsaskóla.

Dagskráin hófst með ávarpi formanns nemendaráðs, Jennýjar Guðmundsdóttur. Að því loknu voru flutt tvö glæsileg tónlistaratriði. Þá var komið að söngleiknum Með allt á hreinu þar sem 41 leikarar stigu á svið undir leikstjórn Gissurar Ara Kristinssonar og Sunnu Maríu Helgadóttur starfsmanna Selsins. Auk leikara voru 6 tækni- og sviðsmenn sem tóku þátt í sýningunni. Sýningin var frábær í alla staði og eiga leikstjórar og nemendur hrós skilið. Eftir leiksýninguna var boðið upp á veitingar og síðan sveifluðu nemendur foreldrum sínum á dansgólfinu en hún Metta þjálfaði unglingana í danslistinni í íþróttatímum vetrarins. Hljómsveitin Meginstreymi hélt síðan uppi stuðinu fram að miðnætti og fóru allir glaðir og kátir heim að lokinni vel heppnaðri skemmtun.

You may also like...