Þór leiðir framboðslistann

Þór Sigurgeirsson.

Þór Sigurgeirsson leiðir framboðslista sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi í komandi bæjarstjórnarkosningum. Hann bar sigur úr býtum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi í febrúar. Tillaga kjörnefndar sjálfstæðisfélaganna á Seltjarnarnesi um framboðslista Sjálfstæðisflokksins var samþykkt einróma á fulltrúaráðsfundi félaganna.

Listinn er þannig skipaður: Þór Sigurgeirsson, sölu- og verkefnastjóri, Ragnhildur Jónsdóttir, hagfræðingur og varabæjarfulltrúi, Magnús Örn Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar, Svana Helen Björnsdóttir, verkfræðingur, Dagbjört Oddsdóttir, lögmaður, Hildigunnur Gunnarsdóttir, uppeldis- og menntunarfræðingur, Örn Viðar Skúlason, hagverkfræðingur og fjárfestingastjóri, Grétar Dór Sigurðsson, hæstaréttarlögmaður, Hannes Tryggvi Hafstein, framkvæmdastjóri, Guðmundur Helgi Þorsteinsson, framkvæmdastjóri og ráðgjafi, Hákon Róbert Jónsson, verkefnastjóri, Inga Þóra Pálsdóttir, háskólanemi, Guðmundur Jón Helgason, fv. Flugumsjónarmaður og Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri.

You may also like...