„Við mótmælum þessu harðlega“

Yfirlitsmynd af fyrirhuguðum breytingum við Ánanaust.
Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar.

Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri Seltjarnarnes­bæjar kveðst hafa áhyggjur af fyrirhuguðum breytingum á gönguþverun yfir Ána­naust. Hann segir að með því að hægja á umferð þarna sé verið að þrengja að Seltirningum. “Við höfum talsvert miklar áhyggjur af þessu og við mótmælum þessu harðlega,“ segir Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar. 

Tilefni er að fulltrúar meirihluta­flokkanna í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur bókuðu að til framtíðar væri æskilegt að breyta hringtorginu við JL-húsið í klassísk ljósastýrð T-gatnamót.

Tillaga um endurbætur á umræddu svæði barst frá skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar. Í greinargerð samgöngustjóra kemur fram að Vegagerðin og Reykjavíkurborg hafi unnið að tillögunni í sameiningu með það að markmiði að bæta umferðaröryggi og aðgengi gangandi og hjólandi vegfarenda. Þór segir að ekkert samráð hafi verið haft eða rætt við bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar í tengslum við framkvæmdirnar enn sem komið er. „Við viljum vera með í ráðum í svona veigamiklum breytingum og munum koma okkar athugasemdum á framfæri varðandi þetta,“ segir Þór.

Telur hann að framkvæmdirnar muni koma til með að hafa neikvæð áhrif á íbúa á Seltjarnarnesi.

„Við höfum miklar áhyggjur af þessu og viljum gjarnan fá einhverjar skýringar á því og hvort það sé möguleiki á að við séum höfð með í ráðum þegar svona er tilkynnt. Við þurfum að sækja vinnu og þjónustu í höfuðborginni eins og aðrir og komast heim líka, þannig að við þurfum að fá að vera við borðið.“

Þór segir að bæjarstjórnin muni setja sig í samband við Reykjavíkurborg. „Það er á dagskrá að koma okkar skoðunum á framfæri við borgina og komast að borðinu og fá að vera með í ráðum með einhverjum hætti. Það þarf að hugsa þetta heildstætt og borgin verður líka að hugsa um sína nánustu nágranna. Við þurfum að vinna þetta allt í sátt og samlyndi.” Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Seltirningar telja að framkvæmdir í umferðarmálum Reykjavíkurborgar skaði möguleika þeirra til umferðar til og frá bæjarfélaginu og hafa áður mótmælti samráðsleysi borgarinnar við Seltjarnarnes. 

You may also like...