Nýr verkefnastjóri frístunda- og forvarnastarfs
Ása Kristín Einarsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri frístunda- og forvarnastarfs hjá Seltjarnarnesbæ. Um er að ræða nýtt starf hjá bænum og snýr að forvarnarstarfi fyrir alla aldurshópa sem og þátttöku í starfsemi félagsmiðstöðvar og ungmennahúss.
Ása Kristín var valin úr hópi öflugra umsækjenda en hún er menntuð í tómstunda- og félagsmálafræðum og hefur starfað við frístunda- og félagsmiðstöðvar í meira en áratug. Meðal annars veitti hún félagsmiðstöðinni Tjörninni forstöðu árin 2016 til 2019, starfaði sem fjölmenningarfulltrúi frístundamála hjá frístundamiðstöðinni Kringlumýri auk þess að hafa veitt Tónabæ forstöðu frá árinu 2020.
Verkefnastjóri frístunda- og forvarnarstarfs er nýtt starf hjá Seltjarnarnesbæ, en helstu verkefni þess eru skipulagning og eftirfylgni við forvarnarstarf fyrir alla aldurshópa í sveitarfélaginu og þátttaka í starfsemi félagsmiðstöðvar og ungmennahúss. Forvarnafræðsla í samstarfi við hagsmunaaðila um forvarnarstarf í sveitarfélaginu, s.s. skóla, félagsmiðstöð, frístundaheimili, foreldrafélög, íþróttafélag og fjölskylduþjónustu heyrir til starfsins, sem er mjög fjölþætt. Seltjarnarnesbær býður Ásu Kristínu velkomna til starfa.