Margrét Gísladóttir ráðin leikskólastjóri

Margrét Gísladóttir.

Margrét Gísladóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri Leikskóla Seltjarnarness. Hún er Seltirningum að góðu kunn þar sem hún hefur starfað við Leikskóla Seltjarnarness sl. 20 ár og hefur öðlast góða innsýn í uppbyggingu leikskólastarfsins, starfshætti, skipulag og rekstur skólans í gegnum árin.

Margrét hefur gegnt hlutverki leikskólastjóra í afleysingum frá því í september 2021 og þar áður einnig á árunum 2018 og 2019. Margrét var áður aðstoðarleikskólastjóri frá árinu 2017. Margrét hefur öðlast góða innsýn í uppbyggingu leikskólastarfsins, starfshætti, skipulag og rekstur skólans í gegnum árin. Hún hefur auk þess verið virkur þátttakandi í undirbúningi að byggingu nýs leikskóla, sem er eitt stærsta verkefnið sem Leikskóli Seltjarnarness stendur frammi fyrir í dag. Margrét er því vel í stakk búin til þess að leiða samstarfsfólk, börn og foreldra í gegnum þær breytingar sem komandi mánuðir og ár bjóða upp á. Þá hefur hún haft tengsl við samstarfsaðila skólans í áraraðir.

You may also like...