Hafmeyjan komin heim

Hafmeyjan komin heim. Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur, fyrrum alþingismaður og sonur Guðmundar frá Miðdal stendur við verk föður síns. 

Gosbrunnurinn Hafmey eftir Guðmund frá Miðdal sem gefinn var Vesturbæjarlaug þegar laugin var vígð 25. nóvember árið 1961 er nú komin aftur á heimaslóðir. Verkið var formlega afhjúpað við Vesturbæjarlaug á Sumardaginn fyrsta þann 20. apríl og því fagnað að Hafmeyjan sé nú komin „heim“ aftur.

Með tímanum lét verkið mikið á sjá og var að endingu tekið niður til lagfæringar. Listasafn Reykjavíkur lét steypa Hafmeyna í brons í samstarfi við Pétur Bjarnason myndhöggvara og hefur bronsskúlptúrinn nú verið reist­ur á stall við laugina á nýjum stað þar sem útbúið hefur verið setsvæði í kringum verkið. Guðmundur frá Miðdal bjó til fjórar gerðir hafmeyja til að nota í gos­brunna og voru nokkrar þeirra reistar í skrúðgörðum víða um land. Styttan Hafmeyjan sýnir stúlku sem heldur á löngu.

You may also like...