Hafmeyjan komin heim
Gosbrunnurinn Hafmey eftir Guðmund frá Miðdal sem gefinn var Vesturbæjarlaug þegar laugin var vígð 25. nóvember árið 1961 er nú komin aftur á heimaslóðir. Verkið var formlega afhjúpað við Vesturbæjarlaug á Sumardaginn fyrsta þann 20. apríl og því fagnað að Hafmeyjan sé nú komin „heim“ aftur.
Með tímanum lét verkið mikið á sjá og var að endingu tekið niður til lagfæringar. Listasafn Reykjavíkur lét steypa Hafmeyna í brons í samstarfi við Pétur Bjarnason myndhöggvara og hefur bronsskúlptúrinn nú verið reistur á stall við laugina á nýjum stað þar sem útbúið hefur verið setsvæði í kringum verkið. Guðmundur frá Miðdal bjó til fjórar gerðir hafmeyja til að nota í gosbrunna og voru nokkrar þeirra reistar í skrúðgörðum víða um land. Styttan Hafmeyjan sýnir stúlku sem heldur á löngu.