Steinunn Arnþrúður skipuð í Neskirkju
Biskup Íslands hefur ákveðið að skipa séra Steinunni Arnþrúði Björnsdóttur í embætti prests í Nesprestakalli í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra.
Frestur til að sækja um embættið rann út 14. mars síðastliðinn. Sjö umsækjendur sóttu um embættið, sem var veitt frá 1. apríl sl. Steinunn var áður prestur í Hjallasókn í Kópavogi.