Bandaríkjamaður kaupir Kjarvalshúsið
Kjarvalshúsið við Sæbraut 1 á Seltjarnarnesi hefur verið selt. Kaupandinn er William Oliver Luckett bandarískur viðskiptamaður, listaverkasafnari og um tíma framkvæmdastjóri the Audience. Húsið við Sæbraut 1 er jafnan kallað Kjarvalshús en það var sérsmíðað fyrir Jóhannes S. Kjarval listmálara árið 1969 sem fékk það að gjöf frá íslensku þjóðinni.
Markmiðið með byggingu þess að búa honum huggulegt heimili og góða vinnuaðstöðu. Kjarval kaus þó að flytja ekki í húsið og var það nýtt meðal annars sem aðstaða fyrir þroskahefta. Húsið hentaði þó ekki allskosta til umönnunar- og sérkennslustarfsemi og var selt árið 1991. Kaupendur þess voru hjónin Högni Óskarsson, geðlæknir og Ingunn Benediktsdóttir, glerlistakona og yogakennari.
Högni rakti tildrög þess að þau festu kaup á húsinu í viðtali við Nesfréttir fyrir nokkrum árum. Hann sagði aðdragandann þann að þau hjónin hafi oft farið í ökuferðir um Nesið og þá komið auga á hús við austari enda Sæbrautarinnar sem þeim fannst dálítið geggjað. „Húsið var í eigu ríkisins og við fréttum svo af því að ætlunin væri að selja þetta hús sem var í umsjón menntamálaráðuneytisins og Listasafns Íslands. Við settum okkur í samband við Beru Nordal sem þá var forstöðumaður safnsins til að tryggja aðkomu okkar að söluferlinu. Svo lásum við í fréttum um páska að Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi fjármálaráðherra hafði látið Sláturfélag Suðurlands hafa húsið í makaskiptum fyrir byggingar sem það átti á Kirkjusandi þar sem Listaháskóli Íslands er nú til húsa. Okkur varð fljótt ljóst að sláturfélagið myndi ekki að eiga húsið til frambúðar svo Ingunn tók af skarið, settist að Steinþóri Skúlasyni, forstjóra og keypti húsið, sagði Högni í viðtalinu. Hann sagði að á sínum tíma hafi verið steyptur garður við sjóinn þar sem Sæbrautin liggur nú. Fiskur hafi verið verkaður á þessu svæði á vegum Thorsaranna og á einhverjum tíma hafi verið farið með nautgripi frá Korpúlfsstaðabúinu þangað til þess að nýta beitarland á Seltjarnarnesi. Tæpast sést móta fyrir garðinum lengur og leifar hans voru urðaðar undir sjóvarnargarð í kjölfar stórviðrisins. Húsið er teiknað af Þorvaldi S. Þorvaldssyni arkitekt. Hann teiknaði húsið með sérþarfir Kjarval í huga. Stofa hússins var til dæmis ætluð sem vinnustofa listamannsins en hún er 110 fermetrar að stærð með fimm metra lofthæð. Í stofunni eru risastórir gluggar með útsýni út á haf. Húsið er 443 fm að stærð. Í húsinu eru sex herbergi, arinn, stórar stofur og einstakt útsýni út á haf en húsið stendur á sjávarlóð. Húsið fékk sérstaka umhverfisviðurkenningu frá Seltjarnarnesbæ árið 2014.