Stórbætt aðgengi fyrir fatlaða

Ferlinefnd á ferð um Hólabrekkuskóla.

Miklar framkvæmdir hafa verið í Hólabrekkuskóla til að bæta aðgengi og aðstöðu þar fyrir fatlað fólk. Sett hefur verið upp sjálfvirk rafmagnsopnun á hurð við aðalinngang skólans, ný lyfta verið tekin í notkun, skábraut var sett upp í matsal auk þess sem aðgengilegt salerni og sturtuaðstaða var sett upp í einni álmu skólans.

Ferlinefnd fatlaðs fólks í Reykjavík fundaði í Hólabrekkuskóla fyrir skömmu til að fagna stórbættu aðgengi fatlaðra og skoða aðstæður. Ferlinefndin er skipuð sjö fulltrúum en Öryrkjabandalag Íslands tilnefnir þrjá í nefndina, Þroskahjálp einn og Félag eldri borgara í Reykjavík einn. Tveir fulltrúar eru kjörnir af borgarstjórn. Nefndarfulltrúar gengu um skólann og skoðuðu framkvæmdir og bentu á möguleika til að bæta aðgengi enn betur.

Virkilega gaman að sjá hvernig til hefur tekist

Ferlinefndin leggur til fjármagn vegna framkvæmdanna en hlutverk hennar er að fjalla um aðgengismál í húsnæði á vegum borgarinnar sem og borgarlandi og leggur til lausnir í aðgengismálum. Magnús Már Guðmundsson borgarfulltrúi og formaður ferlinefndar segir virkilega gaman að sjá hvernig til hefur tekist í Hólabrekkuskóla og sem hvetur okkur til að gera betur á fleiri stöðum innan borgarinnar. Á árum áður hafi oft verið lítið eða ekkert tillit tekið til ólíkra aðgengisþarfa borgarbúa. Fyrir vikið sé nokkuð um það að húsnæði í eigu borgarinnar er óaðgengilegt ýmsum hópum. Sem betur hafi mikið breyst á síðustu árum og hugarfarið er annað.

Ábendingar ÖBÍ og Þroskahjálpar hjálplegar

Hólmfríður G. Guðjónsdóttir, skólastjóri Hólabrekkuskóla segir það hafa verið mjög lærdómsríkt að fá ferlinefndina til að taka út framkvæmdirnar og benda á ýmislegt annað sem bæta myndi aðgengi innan skólans og á skólalóðinni. Margt megi gera með einföldum lausnum. Ábendingar frá fulltrúum Öryrkjabandalagsins og Þroskahjálpar séu reglulega hjálplegar og verði sannarlega hafðar í huga til að gera skólann betri og aðgengilegri.

You may also like...