Framkvæmdir hafnar við íþróttamiðstöðina

Myndin var tekin við undirritun verksamningsins og á henni eru: Haukur Geirmundsson sviðstjóri íþrótta- og tómstundasviðs, Kári Garðarsson íþróttastjóri Gróttu, Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri og frá Munck voru þeir Ásgeir Loftsson, Guðmundur Þórðarson og Ólafur Steinar Þormar og svo Pétur Vilberg Guðnason frá Strendingi eftirlitsaðila verksins.

Framkvæmdir eru hafnar við byggingu og endurbætur á íþróttamiðstöðinni. Undirritaður var verksamningur milli Munck og Seltjarnarnesbæjar um stækkun og endurbætur á íþróttamiðstöð bæjarins þann 16. janúar sl. Auk íþróttasalar fyrir fimleika verður byggð búningsaðstaða, þreksalur, áhaldageymsla, betrumbætt anddyri og fleira sem tengist íþróttaiðkun.

Tilboð bárust frá tveimur aðilum í framkvæmdina og samþykkti bæjarráð á fundi sínum 14. desember 2017 að taka tilboði lægst bjóðanda sem var frá Munck Íslandi ehf. Tilboð þeirra hljóðaði upp á 703 m.kr., sem var mjög nálægt upphaflegri kostnaðaráætlun bæjarins en sú hljóðaði upp á 690 m.kr.

Um leið og framkvæmdir hófust var ný gönguleið tekin í notkun til að tryggja öryggi nemenda og annarra gangandi vegfarandi á meðan á framkvæmdum stendur. Vegna þess hversu mikil umferð gangandi vegfarenda verður fram hjá athafnasvæðinu er gert ráð fyrir að aksturshliðið verði eingöngu notað til að ferja tæki, vörur og annað efni til og frá verkstað. Þegar það er í notkun mun sérstakur öryggisvörður stöðva umferð gangandi vegfarenda og stýra inn og útakstri frá athafnasvæðinu til að tryggja öryggi. Um leið og húseigendur í nær liggjandi húsum og vegfarendur eru beðnir forláts vegna þeirrar truflunar sem framkvæmdirnar og notkun vinnuvéla mun hafa í för með sér eru þeir vinsamlegast beðnir um að taka sérstakt tillit til aðstæðna. Áætluð verklok eru 1. maí 2019

You may also like...