Gert við sjóvarnargarðinn

Unnið með skurðgröfu við að laga skörðin sem myndast hafa í garðinn.

Nú standa yfir viðgerðir á sjóvarnargarðinum við Norðurströnd á Seltjarnarnesi, rétt hjá hákarlahjallinum. Heildarlengd sjóvarna sem verða endurnýjaðar er um 220 metrar.  

Að sögn Gísla Hermannssonar, sviðsstjóra umhverfissviðs bæjarins er oft brimasamt á þessum stað og hefur sjóvarnargarðurinn því látið á sjá og kvarnast verulega upp úr honum á nokkrum stöðum. Vegagerðin hefur umsjón með þessu viðhaldsverkefni sem mun standa yfir næstu vikur. JG vélar í Reykjavík sjá um framkvæmdina. Þeir áttu lægsta tilboð í verkið.

You may also like...