Um 1200 íbúða ný byggð í Skerjafirði

Útlitsmynd af hinu nýja hverfi. Í miðju þess er gert ráð fyrir bílastæðahúsi fyrir íbúa hverfisins en engin bílastæði verða við íbúðar.

Gert er ráð fyrir 1200 íbúða byggð í Nýja-Skerjafirði, nýjum skóla, verslun og þjónustu. Borgarráð samþykkti nýtt rammaskipulag Skerjafjarðar á fundi sínum nýverið. Skipulagið tekur til landsvæðis við enda flugbrautar 06/​24 sem hefur verið lokað, en flugbrautin hefur ýmist verið kölluð Neyðarbrautin eða Litla flugbrautin.

Hugað verður að félagslegri blöndun á svæðinu og hafa stúdentar og Bjarg, byggingafélag verkalýðshreyfingarinnar, þegar fengið vilyrði fyrir lóðum í hinni nýju byggð. Góð aðstaða verður fyrir ýmiss konar sportbáta og seglskútur á svæðinu og er tiltekið að byggja eigi upp góða aðstöðu fyrir siglingaíþróttina á austurhluta strandarinnar. Í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborgar segir að öll strandlengjan á svæðinu sé sólrík og henti því vel til dvalar, útivistar, sjóbaða og siglinga. Þá segir að hugsað sé fyrir tengingu hverfisins við áframhaldandi uppbyggingu í Vatnsmýri þegar flugvöllurinn víki þaðan og eins er gert ráð fyrir tengingu almenningssamgangna við Kársnes í Kópavogi með byggingu brúar yfir Fossvog fyrir gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur.

You may also like...