Vel heppnað Breiðholt Festival

Sjon

Gamli Breiðholtsbúinn og fyrrum forstöðumaður í Fellahelli rithöfundurinn Sjón var mættur á staðinn.

Hátíðin Breiðholt Festival fór fram í fyrsta sinn laugardaginn 13. júní. Hátíðin fór vel fram að sögn Sigríðar Sunnu Reynisdóttur en hún er ein af aðstandendum hennar.

„Við vissum ekki alveg á hverju við áttum von með mætingu og þátttöku en miðað við að þetta er í fyrsta sinn sem þessi hátíð er haldin hér í Seljahverfinu þá erum við mjög ánægð með undirtektirnar. Ætlunin er að efna til sambærilegrar hátíðar að ári en markmiðið með henni er að lífga upp á mannlífið og umhverfið þennan dag og efna til tengsla. Hátíðin var gjaldfrjáls og öllum opin og stefnt er að því að þarna geti orðið um árlegan menningarviðburð að ræða. Meðal þess sem var í boði á hátíðinni á laugardaginn var danssmiðja fyrir fólk á öllum aldri og hljómsveitarsmiðjuna Stelpur rokka sem er fyrir allar stelpur á aldrinum 12 til 16 ára. Mikill fjöldi frábærra listamanna kom fram á viðburðinum sem einkenndist af fjölbreytni og gleði. Aðstandendur hátíðarinnar eru Valgeir Sigurðsson og Sigríður Sunna Reynisdóttir sem standa meðal annars að Bedroom Community í Vogaseli í Breiðholti. Með þeim í samstarfshóp eru; Megan Horan, Berglind Sunna Stefánsdóttir, Hildur Maral Hamíðsdóttir, Bobby Breiðholt, Selma Reynisdóttir og Paul Evans. Breiðholt Festival er skipulagt í nánu samstarfi við Þjónustumiðstöð Breiðholts og Hverfisráð Breiðholts. Einnig er alþjóðlegt samstarf við dönsku hverfishátíðina Mejlgade for Mangfoldighed (MFM) og hið danska myndlistarteymi Artoteket Library. Listasmiðjur voru unnar í samstarfi við Stelpur rokka og DFM Company (Dansaðu fyrir mig).

Ljósmyndir: Magnús Elvar Jónsson.

Die Lodlerinnen

Die Jodlerinnen syngur í Skúlptúrgarðinum við Vogasel.

Bjorn S

Björn S. Blöndal formaður borgarráðs setur Breiðholt Festival.

Tonleikasvædid

Hátíðargestir létu fara vel um sig í sólinni á tónleikasvæðinu.

 

Flot Olduselslaug

Boðið var upp á flot í Ölduselslaug.

You may also like...