Samdi við Gróttu um rekstur og starfsemi íþróttamannvirkja
Seltjarnarnesbær og Íþróttafélagið Grótta undirrituðu í síðustu viku nýjan rekstrarsamning sem mun gilda til reynslu út árið 2018. Rekstrarsamningurinn felur í sér að Íþróttafélagið Grótta tekur að sér rekstur og starfsemi íþróttamannvirkja Seltjarnarnesbæjar, nánar tiltekið íþróttahús, fimleikahús og gervigrasvöll.
Í fréttatilkynningu frá Seltjarnarnesbæ kemur fram að bærinn og Íþróttafélagið Grótta hafi átt farsælt samstarf um langt árabil. Á næsta ári fagnar Grótta fimmtíu ára afmæli, en á þeim áratugum sem liðnir eru frá stofnun félagsins, hefur bærinn byggt upp myndarlega aðstöðu fyrir félagið ásamt því að styðja við fjárhagslegan rekstur þess.
„Bæjarstjórn Seltjarnarness fagnar hinum nýja samstarfssamningi við Íþróttafélagið Gróttu og vonar að með honum muni félagið vaxa og dafna sem aldrei fyrr. Íþróttir hafa löngum verið í hávegum hafðar í rekstri og starfsemi bæjarins og þar hefur Grótta verið bæjarfélaginu afar mikilvægur hlekkur. Grótta hefur borið hróður bæjarfélagsins víða og er starfsemi félagsins bæjarfélaginu afar mikilvægt. Það er von bæjarstjórnar að samningurinn hvetji Íþróttafélagið Gróttu til enn frekar dáða og afreka,“ segir í tilkynningunni.
Samninginn undirrituðu Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri Seltjarnarness og Elín Smáradóttir formaður aðalstjórnar Gróttu.